Dagur 39 - aðfangadagur

Þetta var einn besti dagurinn minn í langan tíma og ég var hin hressasta allan daginn, var reyndar á mínum steraskammti sem hjálpaði kannski eitthvað en samt þá er allt í áttina. Reyndi að vera til aðstoðar eins og mér var frekast unnt en fékk ný reyndar lítið að gera enda nægar hendur til að hjálpast að. Jólin komu með öllum sínum hefðbundna hátíðleik og það var allt eins og blómstrið eina eins og venjulega. Jólin koma alltaf á sínum tíma Við fjölskyldan vorum öll saman og það var það sem máli skiptir. Þórunn var í sinni sveit og Anton heima hjá sér fyrir vestan. Fékk fullt af jólagjöfum og kveðjum með góðum óskum.

Bakið er bara að vera nokkuð gott og ég er í raun alveg forundran yfir því hve góð ég er orðin miðað við allt. Ég er auðvitað á allskonar verkjalyfjum ennþá og á orðið heilt apótek hér í einum eldhússkápnum og finnst það nú vera fullmikið á köflum því ég hef ekki takið nein lyf að neinu ráði allt mitt líf. Ég reyni þó að minnka lyfin mín eins og frekast er kostur eftir því sem ég verð betri og betri og það gengur bara fínt. Þegar maður stendur í svona veikindum fær maður endalaust af pillum til brúka við hinum og þessum pillum og svo mallast þetta allt saman í belgnum og svo er það extra plús ef þetta skilar sér eftir eðlilegum leiðum á endanum. 

Ég átti semsagt frábæran aðfangadag

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Gott að heyra frá þér. Það má nú samt ekki ganga of nærri sér með hörkunni...verkjalyf eiga að notast þegar þeirra er þörf. Þannig gengur batinn betur:) Knús inn í nóttina:)

Katrín, 26.12.2011 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband