Dagur 38 - þorláksmessa

Síðasta sprauta þessarar meðferðar rataði beint í belginn í morgun og það var létt verk. Guðmundur læknir kallaði okkur inn á fund og þar kom í ljós að meðferðin gengur vonum framar og þessar óæskilegu frumur hafa tekið sig saman og bara horfið eða eru komnar niður að núlli á ný eins og í eðlilegri manneskju. Það eru vissulegar gleðifréttir og mun þetta stytta meðferðina mína svo búast má við að ég taki allt í allt fjórar lyfjameðferðir í stað sex, fyrir stofnfrumumeðferðina, eins og lagt var upp með í upphafi. Því mun ég væntanlega tækla mig fyrr í gegnum þetta en áætlað var í upphafi.  Þetta getur svo auðvitað skotið upp kollinum aftur og aftur og þá verður bara að vona að ég bregðist eins vel við og núna og haldi sama dampi og ég hef gert. Mergfrumuskipti eru auðvitað svo inni í myndinni en þá fengi ég frumur úr mér skyldum eða úr mergfrumubanka erlendis en það er seinni tíma umhugsunarefni en ég er það ung að það er vel inn í myndinni ef í harðbakkann slær.

Beinbyggingarefnið sem ég fæ í æð á fjögra vikna fresti, dregur þú úr kalkinu í líkamanum og því þarf að bæta við það í fríinu mínu núna um jólin svo ég verði ekki eins  slöpp og ég hef verið annað slagið. Annars er gott jafnvægi í öllum öðrum líkamsbúskap. Hvítu blóðkornin eru nægjanleg og allt í gúddí.

Ég er gríðarlega heppin að þetta skyldi uppgötvast þó þetta snemma, því hjá  sumum kemur sjúkdómurinn ekki í ljós fyrr en fólk er orðið lamað og bakið jafnvel allt fallið saman og þá er erfitt að byggja það upp á ný eins og verið er að gera hjá mér. Það virðist miserfitt að greina þetta í fólki eftir því hvar mótefnið myndast í frumunum.

Ég mun þó verða veikari í baki það sem eftir er og  verð að haga mínu lífi í samræmi við það í framtíðinni sem er auðvitað alveg nýtt fyrir mér eða þannig. Eftir á að hyggja þá er ég trúlega löngu farin að hlífa mér að einhverju leiti, trúlega vegna þessa sjúkdóms míns sem getur hafa blundað í mér í mörg ár en nær sér ekki alveg á strik fyrr en á haustmánuðum. Ég var fyrir margt löngu hætt að sveifla bjórkútunum í kringum mig eins og hverju öðru smottreýi í Kjallaranum og eitt og annað sem var farið að segja til sín en ég hélt það væri aldurinn, en ég hélt líka að ég væri ennþá 18 svo þetta var svoldið snúið á köflum.

Fór í skötuveislu til Hrefnu mágkonu og Bigga og það var æðislegt að fá smakk af vestfirsku skötunni. Kom við hjá Auði og Kidda með pakkana en það er nýstárlegt að hitta fjölskylduna sína hér fyrir sunnan á þessum tíma og það er bara mjög gaman. Gaui er duglegur að hitta mömmu og stendur sig þar með prýði og sér um hana vel og vandlega með krökkunum sínum en það eru vissulega miklar breytingar hjá mörgum þessi jólin en það koma önnur jól eftir þessi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki hægt að biðja um betri jólagjöf en þessar góðu fréttir Ragna!!! Aldeilis frábært. Sendi þér jólakveðjur úr Víkinni fögru. Kv.Rósa.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2011 kl. 13:08

2 identicon

Gott að heyra. Gleðileg jól til þín og þinna.

Elín þóra (IP-tala skráð) 24.12.2011 kl. 13:19

3 identicon

Gleðileg jól þetta er nú besta jólagjöf sem hægt er að hugsa sér.

Guðrún D Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2011 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband