Dagur 37 - fimmtudagur

Dagurinn í dag hófst með hefðbundinni upprisu eins og flestir aðrir dagar, ég er svosem ekkert að rísa upp á þriðja degi líkt og frelsarinn, heldur kýs ég að gera það svona dags daglega dags og er bara glöð með það. Ekkert tiltakanlega spræk og frekar þróttlaus enda engir sterar til að halda mér almennilega uppi en það er svona. Ég verð hressari á morgun því ég fæ allar hugsanlegar töflur til að halda dampi og lyf beint í vömbina í fyrramálið. Það verður fljótgert. 

Ég þjösnaði Jóni í smá verslunarferð og var orðin fullþreytt og hef legið í rúminu síðan seinnipartinn. Ég verð auðvitað að gæta mín á köflum en ætla mér auðvitað aðeins um of stundum enda kerling sem hef stjórnað heilum her af mikilli röggsemi svo lengi sem elstu menn muna og því erfitt að þurfa að gæta aðsér en það lærist með tíð og tíma.

Við rákumst á Kristinn H. í Kringlunni og drukkum með honum kaffi á kaffitári en hann er einn af fjárhirðunum í Einarshúsi eða bókari og hefur verið okkur innan handar undanfarið við að endurskipuleggja reksturinn og þar var slegið upp stjórnarfundi eins og ekkert væri og öll vandræði leyst á einu bretti. Það var mjög gott.

Fékk í dag frábærar fréttir frá gestakomum þjóðverja næsta sumar en búið er að fullbóka margar vikur næsta sumar sem er mikið meira en var sl. sumar og langt fram úr vonum. Það mun því verða mikið að gera í Einarshúsi næsta sumar og ég hef þegar fengið boð um margar hjálparhendur mér til aðstoðar svo það á allt eftir að ganga vel.

Ég fékk einkar ánægjulegt símtal í dag frá gömlum bekkjarbróður og konu hans sem vildu senda mér jólaglaðning fyrir jólin til að styðja við mig og fjölskylduna. Það er alveg ótrúlegt hvað ótrúlegasta fólk er gott við mig í þessum hremmingum mínum. Ég átti aldrei von á því að ég ætti þennan stuðning inni hjá fólki en ég er greinilega í huga margra og get ekki annað en verið þakklát fyrir það.

Kvöldið endaði svo á Mugison í sjónvarpinu og Fjallabræðrum sem algjörlega toppaði daginn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábærar fréttir. Baráttukveðjur.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 10:43

2 Smámynd: Ragnheiður

það er heilmikil kúnst fyrir duglega konu eins og þig að læra hvenær orkan minnkar og stoppa þá, áður en orkan er alveg búin.

Ragnheiður , 23.12.2011 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband