Dagur 36 - miðvikudagur

Nú var aldeilis heilsufarið til fyrirmyndar í dag og undan neinu að kvarta. Farið var í Smáralindina með Jóni og Elsu, af því að læknirinn hvatti títtnefnda til að vera helst ekki þar sem margir kæmu saman, en þar sem enn átti eftir að kaupa nokkrar jólagjafir og ég var svo fjandi hress var bara ekkert annað í stöðunni. Ég var reyndar orðin dauðþreytt og komin með bjúg á fæturna en hvað er það á milli vina. Ég lagði mig þegar ég kom heim og vaknaði bara hress og kát.

Í Smáralindinni gekk ég um ganga þvera og endilanga og lét bara vel að mér í hvívetna. Ég hef nú á tilfinninguna að visst stabilisted sé að myndast á líkamsbúskapnum og ég sé að venjast lyfjameðferðinni. Það er sko sérdeilis aldeilis fínt og vonandi heldur það áfram. Síðasta sprautan á þessu ári er á Þorláksmessu og þá er frí fram til annars janúar.

Ég er búin að skrifa á jólakort til sumra en hef gleymt nokkrum eða kannski flestum. Sumir hafa kannski fengið tvö jólakort þessi jólin en hinir fá einhverjir bréf og aðrir góð hugskeyti. Það verður að fyrirgefast þegar svona stendur á.

Þetta eru semsagt fréttirnar í dag. Ekkert annað en gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl skvísa,

gott að heyra að dagurinn hafi verið góður - vona að þú fáir góða daga yfir hátíðarnar og þetta stabili..... verði bara til friðs.

Ég óska ykkur gleðilegra jóla og gæfuríks árs og nú með hækkandi sól þá horfum við bjartsýn áfram.

Knús og klemm mín kæra ...... kveðja að austan

Arna (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 08:00

2 Smámynd: Katrín

Ein ferð í Smáralindina er allra meina bót:) Ég þykist viss um að þér verði fyrirgefið þetta með kortin enda svo miklu skemmtilegra að fá hugskeyti. Vona að dagurinn verði þér góður. Kveðjur að westan:)

Katrín, 22.12.2011 kl. 08:14

3 Smámynd: Katrín

hvar ertu nú mín kæra? Ennþá úti að versla?? Miss you :)

Katrín, 23.12.2011 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband