Dagur 35 - þriðjudagur

Haldiðið ekki að Vertinn hafi bara sprottið upp úr rúminu í tíma í morgun hin hressasta, merkilegt hvað dagarnir geta verið misjafnir. Ein eða tveim tylftum af pillum var sporðrennt með morgunmatnum og síðan var brunað niður á Lansann með lífverðinum honum Andra. Sex blóðprufur biðu mín og það gekk eins og í sögu enda virðist nóg blóð í kellingunni ennþá sem betur fer.

 Eftir að búið var að " borga" fyrir blóðprufuna var haldið rakleiðis upp á göngudeildina þar sem ég fékk lyfin mín í þennan lífa fína brunn sem ég er með. Það er sko algjör lúxus að hafa hann þarna til að grípa í þegar á þarf að halda. Í ljós kom að það vantaði að taka þrjár blóðprufur til viðbótar svo það var bara tekið úr brunninum milli lyfjagjafa svo það var ekki mikið mál. Í lokin fékk ég svo "beinbyggingarefni" í æð sem varð að sjálfsögðu að " borga" fyrir á apótekinu niðri en það efni mun ég fá á fjögra vikna fresti á meðan á meðferð stendur en einnig í marga mánuði eftir það. Þær lyfjagjafir er hægt að gefa á Ísafirði svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að koma suður eftir að ég er endanlega komin heim.

Saumurinn var tekinn í dag svo ég lít út eins og nýútsprungin rós........eða þannig. Síðan var " borgað" fyrir herlegheitin uppi á göngudeild og haldið á ný út í daginn.

Ég er búin að fara tvisvar í Kringluna í dag bera rétt til að viðra mig og sjá framan í aðra. Ég sá reyndar alltof marga en ég svosem stoppaði stutt en gat keypt smá. Ég vonast til að komast í fleiri verslanir á morgun því ég fæ sterana líka á morgun og þá get ég keypt þær jólagjafir sem upp á vantar.

Merkilegt nokk að í hvert skipti sem ég gekk fram hjá spegli í Kringlunni fannst mér ég sjá þvílíka kerlingarhverfu að ég brá á það ráð að telja mér trú um að þetta væri einhver önnur en ég. Hárið líflaust, fötin passa illa og allt það, en svo virðist reyndar því fólki sem ég hitti, sér finnast ég líta svo asskoti vel út. Held að þetta hljóti að vera einhverjir meðaumkunar - gullhamrar eða kannski er þetta bara í kollinum á mér eða speglarnir í Kringlunni handónýtir.

Það er þó vissulega viss sparnaður í lélegum speglum því ég kaupi mér sko ekki föt þennan dyntinn.

Allir eru komnir til síns heima og flest allt eins og það á að vera.

Heyrumst á morgun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  Gott að þú vars hress Ragna mín. Það er bara hagsín húsmóðir sem sér að hún þarf ekki að eyða í föt og klippingu fyrir jólin þetta verður allt með 50% afslætti strax eftir jól. Knús á þig og þína.

Erla (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 23:57

2 Smámynd: Katrín

Það er víst æði oft ,,borgað" á þessari vegferð sem Norræna velferðarstjórnin býður svo flott upp á:( Speglar segja aldrei satt og rétt frá og best að láta þá eiga sig..besti spegillinn býr innra:) Góða nótt mín kæra:)

Katrín, 21.12.2011 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband