19.12.2011 | 00:39
Dagur 33 - sunnudagur
Ferðirnar upp og niður stigaganginn urðu ekki nema tvær í dag enda er það bara alveg ágætt þennan dyntinn.l Dagurinn búinn að vera ósköp rólegur enda ekkert annað í stöðunni en að slaka bara á fyrir jólin. Ég er reyndar búin að vera alveg eins og slytti í dag, það verður bara að segjast alveg eins og er og oft verið hressari en oft verið verri sem er gott. Mig grunaði það svosem að ég yrði ekki til stórræðanna í dag og vænta má þess að ég verði í rólegheitagírnum á morgun líka enda fer ég í lyfjatöku á þriðjudaginn aftur og þá hysja sterarnir mig upp á ný og þá fer ég aftur að rífa kjaft eins og mér einni er lagið.
Ég er nú annars ósköp geðprúð og finn mér venjulega eitthvað til dundurs og læt mér aldrei leiðast enda engin ástæða til. Ég hlakka þó til þegar bakið hættir að plaga mig og ég get farið að vera meira á hreyfingu því það skiptir svo miklu máli að líkaminn stirni ekki upp og funkeri rétt. Það yrði nú sjón til næsta bæjar ef Jón færi að draga mig steinstífa upp á Óshyrnuna í gönguferð næsta vorið til að liðka mig til.
Hárlosið hellist yfir mig annað slagið og segjast verður alveg eins og er að það er smá eftirsjá í þessum hárflyksum sem yfirgefa mig annað slagið en það er þó eins og hárið hamist við að spretta þess á milli sem það dettur af. Því er ómögulegt að vita hvernig ég kem til með að líta út á endanum en ég verð örugglega bara sæt og fín eða tel mér trú um það amk.
Þetta eru nú allar fréttirnar í dag. Jón og krakkarnir koma aftur á morgun og þá mega jólin bara fara að koma.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sæl dugnaðarforkur
Kíki á bloggið þitt á hverjum degi þó ég þekki þig ekki en ég er konan hans Davíðs Gests og Bogggu sonur. Þú lætur jólastressið verða að svo miklum smámunum miðað við þetta verkefni sem þú ert að klást við. Gangi þér allt í haginn áfram :)
Ásta Sóllilja Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2011 kl. 10:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.