Dagur 32 - laugardagur

Dagurinn í dag búinn að vera ósköp rólegur en góður. Ég er farinn að taka "spretti" niður stigaganginn til að koma mér á hreyfingu og liðka mig aðeins og koma mér í betra form. Það þýðir ekkert annað. Eina sem plagar mig er bakið auðvitað sem  er enn að gróa en það er alltí góðu því það hefur bara sinn gang og grær í rólegheitum. Það er þetta með helv. þolinmæðina muniði sem ég var að segja ykkur frá um daginn. Maður verður bara að eiga nóg af henni núna.

Jón fór vestur dag ásamt sínu skylduliði og náði Tónleikum Mugisons í nýja Félagsheimilinu og þótti góðir. Honum fannst þó skrýtið að koma í rólegheitin heima þegar bæði vantaði hundinn og kerlinguna í kotið til að rausa yfir hinu og þessu en það venst. Nýtt ár ber svo sannarlega með sér vonir um nýtt líf og nýja heilsu í húsið svo það er bara tilhlökkunarefni.

Mamma vissa varla í hvorn fótinn hún átti að stíga þegar Jón og Elsa heimsóttu hana á skýlið í kvöld enda átti hún ekkert svosem von á þeim núna. Hún er nú hálfhissa að ég skuli ekki ætla að fara að koma heim amk. til að halda jólin hátíðleg fyrir vestan fyrir fjölskylduna eins og ég hef verið vön, en hún er nú kannski ekki alveg að skilja þetta og það er allt í lagi. Ég á nú allteins von á því að fara að birtast í byrjun næsta árs í smá heimsókn ef allt fer sem horfir.

Tengdó hefur mig bara núna út af fyrir sig og virðist njóta þess að stjana við mig og ég læt mér vel það líka. Hún hefur mjög ríka þjónustulund enda af Selkotssystraættinni en þær systu voru allar eins hvað það varðar.

Nóg hefur verið að gera í Einarshúsi síðan ég fór og hinir og þessir hópar í trakteringum hjá Gunnu. Prjónakaffið / jólaglöggið hikk..var víst ágætt eitt og bókasúpan sló í gegn á föstudaginn og allt gengur eins og blómstrið eina. Ég mátti til að kíkja í öryggiskerfi hússins í tölvunni  til að að sjá stemninguna í Bókasúpunni og lét gestina veifa til mín og segja hæ svona rétt til að upplifa stemninguna og ég gat ekki annað séð en að þetta gengi vel án mín. Annars þá er hið alsjáandi auga ekkert að fylgjast með því sem er að gerast í húsinu í öryggiskerfinu svona dags daglega dags nema síður sé.

Jæja vildi aðeins bara láta í mér heyra. Það er líka gott fyrir mig að skrifa svona dagbók til að fletta í ef ég þarf að muna eitthvað. Tíminn er eitthvað svo ótrúlega fljótur að líða og þegar maður man varla neitt frá degi til dags er eins gott að skrifa það niður.

Ég fæ enga stera á morgun og enga á mánudaginn svo ég veit ekki hvað sprettirnir á stigaganginum verða margir en við sjáum til.

Heyrumst

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Haltu nú endilega áfram að halda dagbók, það er svo gott að fá að fylgjast með. Gangi þér vel í baráttunni, duglega kona!

Ingibjörg Gísladóttir (IP-tala skráð) 18.12.2011 kl. 01:02

2 identicon

Hæ, báráttukona,

endilega haltu áfram þessum skrifum, auðvitað er það mest gott fyrir þig sjálfa en ekki síður fyrir okkur hin að lesa þetta því þú ert mjög skemmtilegur penni og það er aðdáunarvert að lesa um það hvernig þú tekur á þessum málum og það mættu aðrir taka þig til fyrirmyndar.

Gangi þér allt í haginn .......

Arna og Jón Ingi

Arna (IP-tala skráð) 18.12.2011 kl. 09:20

3 identicon

Ragna ég óska tér alls hins besta í tessari baráttu tinni en tú ert sterk kona ...........................hefur marg oft sýnt tad..........................., veit ekkert hvort tú manst eftir mér en er tid Elsa (er hún var lítil) komud í Einarsbúd tá spjolludum vid nánast alltaf saman og hún faerdi mér á stundum teikningar man eg!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!En hún tekkir mig orugglega ekki í dag enda ekki skrýtid!!!!!

Elsa Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 18.12.2011 kl. 10:30

4 Smámynd: Katrín

Það er óskandi að þú komist heim í heiðardalinn Ragna mín. Að komast heim er á við margar sterasprautur fyrir þig og alla þína:) Ég bíð á hverju kvöldi eftir nýrri færslu og það yrði nú tómlegt ef skrifin hættu. Endilega haltu áfram fyrir þig og fyrir okkur hin sem stöndum hjá. Bestu kveðjur suður yfir heiðar og fjöll.

Katrín, 18.12.2011 kl. 10:37

5 identicon

Ragna ,ég og Obbi óskum þér alls góðs í þinni baráttu.Við vitum að þetta er erfitt á köflum,en það koma góðir tímar á milli vonandi,haltu bara áfram að vera þú og leyfðu okkur að lesa skrifin þín. Það er oft hugsað til þín þó ekkert sé sagt.Guð veri með þér og þínum um jólin og ævinlega.

Dóra M.Elíasdóttir. (IP-tala skráð) 19.12.2011 kl. 03:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband