11.12.2011 | 23:46
Dagur 26 - sunnudagur
Vertinn er nánast búin að vera betri en nýr í dag og öll að koma til. Búin að taka plásturinn frá skurðinum mínum og þetta lítur allt vel út. Ég finn fyrir stykkinu fyrir innan húðina og það er bara töff. Morgundagurinn er síðasti dagurinn áður en ég fer í næstu lyfjameðferð svo ég ætla að reyna að nýta hann aðeins og ganga frá jólagjöfum og þess háttar. Jólin koma þrátt fyrir allt svo það er eins gott að reyna að undirbúa sig eitthvað þegar maður hefur heilsu til. Annars þá getur vel verið að ég verði bara hress og kát það sem eftir er og ég held í þá von að svo verði.
Við fórum öll í glæsilegt matarboð til Auðar og Kidda og það var sko reglulega gaman og gott að lyfta sér aðeins upp. Þar át maður svo sannarlega á sig gat svo þið sjáið það að ég lifi eins og blóm í eggi.
Það er trúlega uppúr miðjum október sem ég fer að finna fyrir óþægindum í baki og fór að hætta að geta gert einföldustu verk. Það að klæða sig, fara í sturtu, fara fram úr rúminu og þess háttar auðveldar athafnir voru orðnar erfiðar og ég skildi ekki af hverju. Snúa sér í rúminu og lyfta sér upp og eitthvað svoleiðis skítauðvelt stöff var mér bara svo sérkennilega erfitt. Við vorum alveg endalaus að reyna að finna skýringar á þessu og Jón Bjarni fór að leggja ofuráherslu á að draga mig í langa göngutúra, jafnvel hálfgerðar fjallgöngur upp á Óshyrnu. Ég lagði kókosbollukúrinn á hilluna því ég þóttist viss um að aukakílóin væru að sliga títtnefnda. Rætt var um að ég hætti að ganga á háhæluðu og hætti að prjóna og bara allt var fundið til svo hægt væri að laga þessa farlama kerlingu sem funkeraði lítið sem ekkert. Mér tókst þó að gera eitt og annað þar til ég gat ekki meir. Svo kom auðvitað skíringin á þessu öllu saman þegar upp komst að ég var eiginlega hryggbrotinn á tveimur stöðum svo þetta var allt eðlilegt.
Við erum að reyna að skrá niður sjúkrasögu mína og auðvitað sjúkrasögu Lilju í leiðinni en hún er búin að vera mjög veik á meðgöngunni og hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna ofþornunar en við lágum eina nótt saman á sjúkrahúsinu á Ísafirði svo Jón Bjarni þyrfti ekki að vera að sinna okkur báðum á tveimur stöðum. Þetta er í rauninni búið að vera eins og í lygasögu og ennþá er Lilja veik svo dögum skiptir en við höldum í vonina að það fari að lagast enda á hún það alveg skilið
Að öðru leiti er ég öll að koma til og himinlifandi með daginn í dag
Vildi bara aðeins láta í mér heyra
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Það er margt sem maður sér betur í fjarlægð og útskýrir það sem er í nútíð. Best er þó að nú ertu komin í góðar hendur og góðir hlutir farnir að gerast þó á stundum gangi það hægt. Leitt að heyra með Lilju en vona að hún braggist fljótt:) Farðu vel með þig mín kæra og gangi þér sem best í næstu umferð:)
Katrín, 12.12.2011 kl. 00:25
Það borgar sig að skoða hlutina fyrr en seinna. Mamma glopraði því útúr sér við heimilislækninn sinn að hún hafi fengið sjóntruflanir. Sem betur fer var hann með eyrun opin. Nú er hún í heimsókn hjá okkur á Vestfjörðunum en við ekki í heimsókn hjá hjá henni á langlegudeild eða kirkjugarði.
Ómar Smári Kristinsson (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 18:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.