Dagur 25 - laugardagur

Það sem er ekki stjanað við títtnefnda þessa dagana. Tengdó og Jón sjá sko örugglega til þess að Vertinn hafi það náðugt. Ég má hvorki þvo né elda mat né bara gera það sem eðlilegt þykir á bestu bæjum. Auðvitað kvarta ég ekki því þá get ég prjónað eða bloggað eða bara lagt mig, horft á sjónvarpið eða bara hvað sem er.

Svo eru líka fjölmargir sem passa upp á það að ég fái nóg að borða og mættu Áslaug og Mæja bekkjarsystur mínar með stóran konfektkassa í dag og það var svo gaman að fá þær í heimsókn. Sigga konan hans Gísla frænda kom með nýbakaðar flatkökur og svo er Auður systir búin að bjóða okkur í mat á morgun svo þið sjáið það að það leggjast allir á eitt að skaffa mér æti. Andri og Þórunn eiga það líka gjarnan til að mæta með kjötsúpu eða eitthvað annað kjarngott úr sveitinni fyrir okkur svo það er ekki hægt að segja annað en að vel sé hugsað um mig hér syðra.

Ég er búin að vera góð í dag, var að klára peysuna sem ég byrjaði á fyrir viku síðan og verð ég því að finna mér annað verkefni hið bráðasta. Eina sem plagar mig er smá þreytuverkur í bakinu annað veifið og þá hvíli ég mig bara og bryð verkjatöflur, það er ekkert að því. Ég má víst aldeilis vera heppin að vera orðin þetta góð á ekki lengri tíma.

Plásturinn frá sárinu eftir drenlögnina má ég taka á morgun og þá má ég einnig fara í sturtu svo þið sjáið það að allt er að komast í fastar skorður. Það er auðvitað lúxus að geta þrifið sig svona endrum og eins.

Glöggt má því sjá að ég hef það gott og hef ekki undan neinu að kvarta

Alltílæbless - í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir mig Ragna mín, alveg æðislegt að hitta ykkur, flott að hafa svona gott fólk í kringum sig og láta stjana við sig á alla kanta. Sá það í dag að ekki væsir um þig í umsjá Jóns og tengdamömmu þinnar:)

Mæja Hauks (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband