9.12.2011 | 21:30
Dagur 24 - föstudagur
Vertinn glaðvaknaði kl. sjö og mátti til með að fara í sturtu á fastandi maga. Um klukkutíma síðar var ég mætt á lansann tilbúin í stálísetninguna eða drenlögnina sem fest var á viðbeinið vinstra megin rétt fyrir ofan brjóstið. Ég fór fram á það við svæfingarlækninn að fá að sofna létt og dreyma að ég væri stödd á sólarströnd með volgan sjóinn við tærnar með með ískalt appelsín mér við hlið og hann reyndi að gera það sem hann gat í þeim efnum amk. hætti ég að vita af mér þegar búið var að staðdeyfa svæðið og í þann veginn og hinn færi skurðlæknir tók upp hnífinn og hóf sína vinnu.
Það er reyndar búið að eyðileggja þann draum fyrir títtnefndri að hún leggi mótelstörf fyrir sig í framtíðinni því skurðurinn er hátt í 10 sentímetra langur og liggur þvert á bringuna en það stóð svosem ekkert til að fara út á módelmarkaðinn úr þessu. Þetta stáldren mun auðvelda allar nálastungur héðan í frá svo þetta á eftir að vera mikið til bóta.
Ég fékk með mér passa til að hafa tiltækan ef ég fer til útlanda með drenið í mér því allt mun pípa í hliðinu er ég geng í gegn með stálið innanborðs svo það er vissara að hafa eitthvað í höndunum sem skýrir það.
Hárið er byrjað að losna svo ég vænti þess að enda í háhöfuðhártískunni áður en yfir líkur, nauðasköllótt en það vex aftur. Ég fæ mér bara einhvern fallegan hatt eða annað höfuðfat eða læt bara vindinn nauða um skallann, við sjáum til.
Ég er búin að vera bara við rúmið í dag að jafna mig. Ekkert að hrjá mig nema leti svo það er allt í lukkunar velstandi.
Heyrumst á morgun
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Gott að heyra, kæra vinkona. Þú ert alltaf glæsileg, hár eða ekki, stálskurður eða ekki. Knús í hús.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2011 kl. 21:45
Til lukku með drenið...það má kannski nýta það til fleirri hluta en að ,,drekka" lyf þar í gegn:) Hár eða ekki hár þá verður þú nú alltaf sama Ragna:) Annars er fullt að gera í höfuðfatatískunni svo þú átt örugglega ekki eftir að vera í vandræðum með þá deild:) Sofðu rótt í nótt mín kæra:)
Katrín, 10.12.2011 kl. 00:21
Hetja ertu, gangi þér vel með þetta allt saman Ragna mín. Hattar eru bara í tísku og ég sé þig alveg sem týpuna með einn slíkann! Ég var að horfa á gamalt dót sem Tryggvi er búinn að setja saman á dvd - bara gaman að sjá hvað tíminn hefur flogið á auðvitað jákvæðan hátt :)
Dagga (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 00:26
Baráttukveðjur til þín Ragna, sendi mína bestu strauma til þín!
Bjössi (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.