8.12.2011 | 22:58
Dagur 23 - fimmtudagur
Dagurinn hófst á ferð á fósturgreiningardeildina þar sem Lilja ljósberi fékk að sjá litla ljósið sem hún ber undir belti. Þar var allt í sómanum og allt eðlilegt og ekki var annað að sjá en að blessað barnið líktist mér, amk. var það einstaklega fallegt hvað sem á það er litið og mikil ró og værð hvíldi yfir litla krílinu. Við systurnar verðum báðar ömmur á árinu en Auður fær sitt fyrsta barnabarn í janúar en ég í júní svo það er bara gleðiefni. Lilja og Anton eru reyndar ansi ung en þau eiga eftir að spjara sig með góðri hjálp.
Eftir hádegið fór ég síðan í blóðprufu því ég fer í stálígræðsluna í fyrramálið kl. átta og þeim þótti alveg tilvalið að stinga mig örlítið svona í síðasta sinn. Ég verð nokkuð kát þegar sú aðgerð verður búin en þetta verður reyndar bara pís of keik eins og allt annað.
Ég er farinn að geta gengið nánast óstudd um allt og nota göngugrindina mína svona aðallega undir fötin mín, enda ætlaði ég ekkert að nota hana, því ég get verið þrjóskari en andskotinn sjálfur þegar þannig viðrar. Grindin mun þó verða heima ef eitthvað kemur uppá.
Dagurinn í dag semsagt búinn að vera mjög góður þó ég geri varla nokkurn skapaðan hlut. Fór reyndar í Mjóddina í garnbúð svona rétt til að skoða. Ég keypti ekkert en Andri keypti garn í peysuna sem hann er að prjóna.
Elsa lögfræðineminn einbeitir sér algjörlega að lærdómnum en stórt próf bíður handan hornsins og því fer afar lítið fyrir henni.
Jón er kominn í hlaupahóp í Hafnarfirði með krökkunum og hleypur þar þrisvar í viku. Það er sérdeilis fínt.
Held ég fari bara að sofa svo ég verði útsofin fyrir aðgerðina á morgun
Heyrums síðar
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Vúhúuuuuu...góðar fréttir gleðja. Og mikið er ég ánægð með hann Jón þinn, kallinn bara kominn í skokkhóp!! Big LIKE. Hér orðið ansi jólalegt um að litast úti og jólaskreytingarnar taka sig vel út með snjónum. Good Luck í fyrramálið...
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2011 kl. 00:07
Bestu kveðjur til þín og þinna Ragna mín og gangi þér súper vel í ígræðslunni!
Sóley Veturl. (IP-tala skráð) 9.12.2011 kl. 08:23
Frábært að lesa góðar fréttir af þér og þínum. Vonandi gengur stálígræðslan vel. Bestu kveðjur.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2011 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.