Dagur 21 - þriðjudagur

Líðanin í dag mjög góð. Ég þreytist auðvitið í bakinu og þarf að hvíla mig á milli. Svo geng ég frá eldhúsglugganum í áttina að stofuglugganum og tek nokkra góða spretti kringum stofuborðið en annars gengur þetta allt nokkuð smurt.

Ég á að fara í stálígræðsluna á föstudaginn og í undirbúning fyrir hana á fimmtudaginn. Það verður fínt að klára það. Það er létt svæfing og smá skurður þar sem slanga verður þrædd upp í æð og stálstykkinu komið fyrir og það á örugglega eftir að ganga allt vel.  Engar stungur meira á meðferðinni sem er mikið gleðiefni. Mig hlakkar ekkert til en kvíður heldur ekki fyrir.

Að öðru leiti þá get ég prjónað af mikilli áfergju og vænta má þess að stingandi jólagjafir verði í jólapökkunum í ár.

Sigga nuddari mágkona mömmu er búin að bjóða mér í slökunarnudd á morgun og þangað ætla ég og láta hana stjana við mig.

Svo fer ég með Lilju ljósbera í mæðraskoðun á fimmtudaginn og það verður gaman að sjá tilvonandi ömmubarnið í sónarnum. Næsta vor þegar ég verð orðin alheilbrigð mun að öllu óbreyttu fæðast lítill ljósgeisli í fjölskylduna svo það er æðibjart við endann á göngunum.

Ég neita því ekki að ég sakna þess að komast ekki heim, sérstaklega til að heimsækja mömmu en vegna þess að hún heyrir svo illa er ekki hægt að hringja í hana til að spjalla svo ég get ekki einu sinni heyrt röddina í kellingunni minni, en ég veit að það er vel hugsað um hana á Skýlinu. Jón Bjarni, Elsa og Lilja eiga þó eftir að kíkja vestur fyrir jólin og ná í föt og annað því farið var í þeim fötum sem við stóðum í og þá munu þau líta til hennar. Ég mun vera hér heima og passa uppá mig eins vel og get.

Heyrumst betur á morgun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Fyrir gef þú mér hver á Einarshús í Bolungavík sem reindar Pétur Oddson bygði.ég var mikið í þessu húsi þegar ég var barn.Ég er undan svokölluðum Fótungum. mig langar að benda á eitt,það á ekki að vera R í Bolungavík.það eru aðfluttir menn sem komu með R vitleisuna..

Vilhjálmur Stefánsson, 7.12.2011 kl. 00:32

2 Smámynd: Katrín

Alltaf gott að komast ,,heim" Ragna mín.  Til lukku með væntanlegt ömmubarn, þau eru bara yndi :)  Bíð eftir mínu þriðja sem kemur kannski í dag eða á morgun)  Kveðjur mín kæra og farðu nú vel með þig.

Katrín, 7.12.2011 kl. 10:24

3 identicon

Dásamlegt að heyra að það sé von á ömmubarni Ragna mín:) Til hamingju innilega!

Vona að stálígræðslan fari vel! 

Ásta María (IP-tala skráð) 7.12.2011 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband