Dagur 18 - laugardagur

Vertinn svaf eins og ungabarn í nótt þrátt fyrir að nágrannakona mín og herbergisfélagi til nokkurra daga hafi komið yfir að rúminu mínu og potað í mig hér en hún veit ekkert í sinn haus blessunin og er alveg út úr kú. Hún hefur verið að halda fyrir mér vöku með bölv. veseni undanfarnar nætur og ég hef þurft að vera að hringja á sjúkrafólk henni til aðstoðar. Þannig að þið sjáið það að ég hef verið á fullu í umönnunarstörfum í veikindunum . Mig hefur reyndar stundum langað yfir og ......................en ekki kunnað við það enda að jafnaði geðprýðismanneskja.

Allt stefnir í það að ég fái að fara heim í dag í helgarleyfi svo það verður nú upplit á minni þegar hún valhoppar héðan út í dag því nú mun ég ganga út með höfuðið hátt en ekki láta aka mér í einhverju hjólastólaskrifli. Ég má auðvitað ekki fara á neina mannfagnaði þar sem samankomið er fullt af fólki hnerrandi í allar áttir og aðallega í áttina að mér, því þar sem fleiri en tveir menn koma saman með kvef eða aðrar umgangspesstir eru kynstrin öll af sýkingahættum sem geta tekið sér bólfestu í kroppnum mínum og gert mig fárveika. Ég vil þó ítreka það að það er leyfilegt að heimsækja mig í Stífluselið og þar verður örugglega heitt á könnunni enda verða Jón Bjarni og tengdamamma tilbúin í þjónustu og ummönnunarstörfum allan sólarhringinn. Það sem er það besta að ef ég veikist þá á ég rúmið mitt tilbúið á spítalanum og ég get komið þegar ég þarf og vil.

Lagt er svo upp með að ég fari í stálígræðsluna eftir helgina. Nú er ég semsagt að renna inn í þetta tíu daga frí þar sem ég á að geta verið skapleg til heilsunnar.

Gunna Ásgeirs hefur haft í nægu að snúast heyrist mér og hún er upp fyrir haus. Hún er nú ekkert að gera mikið úr sínum verkum frekar en vanalega og heldur sínu striki og fer ekkert hátt með það sem hún gerir. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki hana Gunnu. Ég var smástund að átta mig á því hvar viðtalið við hann Stjána var tekið út af slysinu í Ljósafjöllunum var tekið sem sýnt var í Kastljósinu í gærkvöld og auðvitað var það í Einarshúsi. Það kom mér mjög skemmtilega á óvart.

Halla Signý stóð svo fyrir bókakaffi sem heppnaðist vel og nýjustu fréttir herma að spilað hafi verið á fimm borðum í gærkvöldi svo það er nóg að gera.

Ég er búin að vera heima síðan fyrripart dags og nú er liðið að kvöldi og allt i himnalagi. Ég fór út af spítalanum í bévítans hjólastólnum því það er svo langt að fara á helgum út úr spítalabyggingunni því aðalinngangurinn er lokaður og ég treysti mér ekki til að labba enda er vömbin er orðin svo stór og ég held illa ballans því hryggurinn er svo dópaður af morfíni til að halda verkjunum í skefjum að hann heldur ekki við magavöðvana. Já það er flest sem getur plagað eina vesalings manneskju.

Þetta er semsagt allt í fína lagi og ég fékk meira að segja góða gesti að vestan í heimsókn í dag og reyndar fæ ég góða gesti alla daga. Það er svo gaman þegar fólk kíkir inn.

Ég fæ að vera heima fram á mánudagsmorgun ef ég verð svona góð

Takk enn og aftur fyrir góðar óskir og verið góð hvert við annað

Heyrumst aftur á morgun

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það þarf miklu meira en útstandandi bumbu (sem nota bene finnnst ekki öllum óaðlaðandi...) á þig til að þú hættir að vera gella! Til hamingju með helgarfrí á heimili móður Teresu. Bestu kveðjur til allrar fjölskyldunnar - eða kuvedio, eins og mexikoskur æskuvinur Smára skrifar.

Nína og Smári (IP-tala skráð) 4.12.2011 kl. 00:56

2 Smámynd: Katrín

sjaldan fellur þér verk úr hendi Ragna mín og mikið er sú gamla heppin af hafa þig sem herbergisfélaga:) En gott er öllum að fá frí frá vinnu og hvíld í Stífluselinu örugglega kærkomin. Vona að þú fáir að njóta dvalarinnar þar sem lengst mín kæra. Endalaust knús til þín og kveðjur frá Ísó:)

Katrín, 4.12.2011 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband