Dagur 16 - fimmtudagur

Vertinum verður haldið á Landspítalanum eitthvað áfram eða fram yfir helgi. Ég fæ þó að fara í heimsókn heim yfir daginn en kem aftur að kvöldi ef ég verð frísk. Það er mjög gott að geta fengið að vera aðeins lengur því það verður að segjast alveg eins og er að ég er eiginlega hálfkvíðin að þurfa að fara heim.

Ég fékk krabbameinslyfið beint í vömbina í dag en það er hægt að gefa þetta lyf þannig. Einnig er ég farin að fá sýklalyfin í pilluformi núna svo óhætt þótti að taka nálina góðu úr handleggnum og það er svei mér gott.

Það er eiginlega orðið mjög erfitt að finna æðar og það er eiginlega hætt að ganga svo vel sé. Því þarf ég að fara í smáskurðaðgerð þar sem stálstykki verður fyrirkomið undir húðinni og fest við rifbein en úr þessu stálstykki er síðan slanga tengd í æð og síðan verður bara saumað fyrir. Í þetta stálstykki verður svo hægt að nálgast blóð með mjög auðveldum hætti og gefa blóð og vökva að sama skapi í kroppinn og verður bara staðsett undir húðinni. Þetta á ekkert að pirra mig og ég á að losna við allar sprautur hér eftir. Þetta stálstykki mun svo bara vera undir húðinni þar til meðferðinni líkur. Ætti ég því að geta staðið undir nafninu Stálfrú hér eftir.

Ég fékk auðvitað hita undir kvöld þótt ég sé á ótal sýklalyfjum,  trúlega undan gleðiglundrinu sem ég fékk í dag. Ég er því búin að fá töflur til að reyna að slá á hitann. Eitt er víst að núna er ég á besta stað í bænum og get vonandi sofið í nótt.

Læt í mér heyra á morgun

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Knús og kram úr Víkinni fögru.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 22:46

2 identicon

Gott að fá svona reglulegar fréttir af þér duglega vinkona.  Hugsa til þín daglega, kem svo í heimsókn bráðlega. Batakveðjur og knús:)

Mæja Hauks (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 23:18

3 identicon

Til Rögnu " yfir og undir og allt um kring"

Mér finnst bara frábært hvernig þu tekur á málunum,: leyfir okkur ad fylgjast med medferdinni a ter. Hefði aldrei getað ímyndað mér hvernig þetta ferli er, hryllir við öllum þessum sprautum og lyfjum sem er dælt í þig. Hef aldrei heyrt neinn lýsa þessu svona nákvæmlega. Þú ert Valkyrja, þú getur þetta. Gangi þér allt í haginn.

Vertu yfir og allt um kring,

með eilífri blessun þinni,

sitji guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

Ingunn (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 23:47

4 Smámynd: Katrín

Elsku hjartans kerlingin mín...það er gott að vera í öruggu umhverfi þegar svona á stendur. ,,Drenlögnin" forðar miklum óþægindum og svo má hella upp á eftir þörfum:)D Vona að nóttin verði þér góð og þú náir að hvílast og safna kröftum. Kveðjur til þinna

Katrín, 2.12.2011 kl. 00:01

5 identicon

Elsku Ragna, hvílík hetja sem þú ert. Einu sinni áttu Bretar Járnfrú, nú eiga Bolvíkingar Stálfrú. Það er nú ekki ónýtt. Annars er ég með kveðju til þín - hitti konu á Ísafirði í gær sem ég þekki. Hún fékk þetta sama og þú fyrir nokkrum árum, hafði ekki fundið fyrir neinu fyrr en einn daginn hún bara steinlá. Hún bað fyrir kæra kveðju til þín - hún var hjá sama lækni og bar honum vel söguna.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 09:21

6 identicon

Elsku Ragna, þú ert alveg ótrúlega sterk og dugleg kona! Hugsa til þín og sendi þér hlýja strauma. Knús til þín og þinna!

Elísabet M. Hálfdánsdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 10:46

7 identicon

Þú ert ótrúlega mikil hetja.  Sá sem mætir mótlæti í lífinu, sérstaklega svona alvarlegum veikindum, með þeim hætti sem þú gerir er tvímælalaust hetja í mínum augum.  Bestu kveðjur frá Ísafirði Henry Bæringsson

Henry Bæringsson (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 10:53

8 identicon

Það er eins gott að þessir sérfræðingar stappi í þig stálinu!! Kærar kveðjur héðan úr Víkinni

Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 11:47

9 identicon

Gangi þér vel Ragna mín. Bið fyrir að allt fari á besta veg

Kveðja til ykkar beggja,

Alda.

Alda Baldursdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 13:26

10 identicon

Mikið óstjórnlega ert þú dugleg kona, sendi þér batakveðjur, fylgist alltaf með þér.

Gunnhildur Elíasdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 14:26

11 identicon

Ynnilegar batakveðjur sterka kona, byð alla góða vætti að vaka yfir þér og gefa þér kraft til að sigrast á veikindum þínum.

Kveðja frá Gautaborg.

Baldur Bjarnason (IP-tala skráð) 3.12.2011 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband