29.11.2011 | 23:03
Dagur 14 - þriðjudagur
Það var auðvitað tekið á móti mér með kosti og kynjum þegar ég staulaðist inn aftur á deildina í gærkvöld. Hver læknirinn á fætur öðrum skoðaði mig í bak og fyirir og hér eru meira að segja konur læknar í meiri hluta svo þetta er af báðum kynjum og sitt sýnist hverjum um það skal ég segja ykkur. Gamla fólkinu þykir þetta nú hinsegin að læknarnir séu farnar að senda konur fyrir sig á stofugang.
Ákveðið var að taka enga sjénsa og láta kellu beint á sýklalyf til að fyrirbyggja að engin ígerð hefði sprottið upp bara úr þurru, þvagsýni tekið og mælt allt sem hægt var að mæla Setja þyrfti upp nýjan æðalegg en allar æðar eru nú orðnar undirlagðar af stungum og æðarnar eru farnar að hlaupa undan sprautunum og hjúkkurnar voru í vandræðum í nótt að ná blóði úr kellu. Það tókst þó fyrir rest að kippa nokkrum blóðdropum hér og þar sem send voru í ræktun og dæla sýklalyfjunum sína leið.
Ég svaf svona af og til milli en var vakin með tíðu millibili til að mæla mig og taka blóðþrýstinn og svoleiðis nokkuð. Það er synd að segja að það sé ekki hugsað um mann hérna og fylgst með en þetta var óttalega óróleg nótt.
Klukkan átta upp á mínútu stóð sjúkraþjálfari við rúmið og heimtaði að ég færi fram úr og gengi fram á gang með nýja göngugrind sem ég þarf að hafa með mér heim til að styðjast við meðan bakið lagast. Ég hélt hann væri að djóka og sagði það nú óspart við hann að hann hlyti andskotakornið að geta fundið annan tíma til að drösla mér fram úr rúminu til að fara í göngutúr en svona snemma í morgunsárið eftir svona hrikalega slæma nótt. Hann lét það sem vind um eyru þjóta og stóð við rúmið galandi þar til ég dröslaðist á fætur, þá fékk hann mig til að ganga með grindina fram, taka þar hring og halda aftur upp í rúm. þvílíkt og annað eins. Hann bauðst til að senda til mín annan sjúkraþjálfara líka til að koma með mér í göngutúr og ég afþakkaði það af mikilli festu en allt kom fyrir ekki. Ég fæ þó göngugrind heim sem er mér nauðsynlegt svona fyrst í stað.
Strax í kjölfarið á göngutúnum var mér ekið niður í kjallara í eina röntgenmyndatökuna enn en það var lungnamynd til að kanna hvort einhver sýking hefði sprottið í lungun en svo var ekki. Ég er semsé heilbrigð hvar sem á mig er litið og hraust. Það er bara þetta trukk á þessari fyrstu lyfjameðferð sem virðist gera þetta að verkum að líkaminn bregst svona við. Þetta verður vonandi ekki svona í framtíðinni.
Dagurinn hefur farið svoldið í svefn og kósýheit. Er öll að braggast nú undir kvöld. Er enn á sýklalyfjum í æð og fæ næsta skammt kl. sex í fyrramálið. Það er að takast að verkjastilla bakið mjög vel og ég er farin að geta gengið án göngugrindar smá spotta svo þið sjáið það að það er í áttina.
Ég er nú að gera mér vonir um að fara heim á morgun en næsta gleðiglundur er á fimmtudag. Við sjáum bara til með það hvenær þeir henda mér út blessaðir.
Guðmundur læknir kíkti á mig rétt snöggvast og sagði að meðferðin gengi mjög vel þrátt fyrir allt svo þá er ég ánægð. Sjúkdómurinn er auðvitað líka að gera mér skráveifur og er með óþekkt líka svo þegar þetta blandast allt saman þá getur eitt og annað komið uppá.
Maturinn á sjúkrahúsinu er nú bara nokkuð góður og ég var farin að halda að þeir hefðu í fyrstu lagt mig inn á Litla Hraun í misgripum því þar á að vera lúxusfæði í boði en svo virðist sem það sé ekki tilfellið.
Læt þetta duga í bili
Heyrumst vonandi á morgun
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sko mína!!!! Allt í rétta átt.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 23:08
Þú bara segir eins og Frú Árelía á Brekku: er þetta læknir eða kelling sem við erum að fara að hitta?
Ylfa Mist Helgadóttir, 29.11.2011 kl. 23:23
Erla V (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 23:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.