Södd og sæl

Nú er ég södd og sæl eftir velheppnaðan kvöldverð með góðum gestum innar fjölskyldunnar í tilefni afmælis Elsu. Fjör var í afmælisveislunni sem hún hélt fyrir félaga sína í gærkvöldi og fékk afmælisbarnið margar góðar gjafir sem eru án efa mjög nýtilegar.

Ég ætla að skella mér á þorrablót í Holti á næsta föstudag en það er orðið ansi langt síðan ég hef farið þangað á blót. Ég var tíður gestur í Önundarfirði þegar Halla Signý bjó á Kirkjubóli í Bjarnadal svo ég þekki þar örlítið til.

Ég get þó ekki látið hjá líða að nefna þær reglur sem viðhafðar eru á þessu blóti og koma mér mjög spánskt fyrir sjónir. Þar sem ég er formaður næstu þorrablótsnefndar í Bolungarvík tel ég það skyldu mína að hafa miklar skoðanir á þessum óréttmætu reglum sem þar eru hafðar í hávegum.

Á þetta þorrablót mæta bara boðsgestir!!! Þvílíkar reglur. Þeir sem ekki þekkja neinn í skemmtinefndinni eiga sem sé engan séns á að fá að mæta.

Tökum dæmi:

1. Stormur Styr er nýfluttur til Flateyrar og er vinalaus og enginn vill virða hann viðlits. Honum langar að komast á samkomur í sveitinni og kynnast fólkinu betur, en enginn bíður honum til blóts. Hann verður að sitja heima með tárin í augunum og ákveður í framhaldinu að flytja aftur heim til Eskifjarðar.

2. Magnfríður frá Merkigili býr á elliheimilinu á Flateyri og er í hjólastól. Hún vildi svo gjarnan fara á blótið og hitta sveitunga sína og eiga með þeim góða kvöldstund en enginn úr skemmtinefndinni hefur haft tíma til að heimsækja hana á elliheimilið til að bjóða henni, svo hún verður að sætta sig við það eitt árið enn að sitja heima. Hún er orðin 96 ára gömul og er orðin úrkula vonar að fá að hitta fólkið sitt áður en hún kveður þessa jarðvist.

3. Friðrik Freðýsa er fjósamaður í Hólakoti í Dýrafirði og hefur lengi haft hug á stúlku í næsta firði. Eina skemmtunin sem hún sækir er þorrablótið í Holti svo það er eina tækifæri Friðriks til að hitta hana og gera hosur sínar grænar fyrir henni. Honum er ekki boðið enda segja sögur að það sé ekki algengt að boðið sé út fyrir sveitina.  Hans framtíð er því ráðin og hann verður ólofaður og barnlaus það sem eftir er.

Blótum þó ekki blótinu í Holti. Ég ætla að mæta með góða skapið og skemmta mér hið besta.

Mér er nefnilega boðið.  Smile

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvernig er með makalausa fólkið á Bolungavík er því boðið á þorrablót???

Erla (IP-tala skráð) 11.2.2007 kl. 23:37

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Nei því er ekki boðið. Er það ekki makalaust

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 11.2.2007 kl. 23:40

3 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Góugleði verður haldin í Kjallaranum 24.febrúar. Þangað er öllum boðið. Er það ekki makalaust

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 11.2.2007 kl. 23:43

4 identicon

Jú það er sko alveg makalaust.  Erla

Erla (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 01:05

5 identicon

Ohhh,,, að maður skuli kalla þetta vinkonu sína sem lætur svona um víðan völl. En ég get upplýst ykkur um kæru lesendur að hún er búin að væla utan í mér síðan í nóvember um að bjóða sér með á Þorrablótið, þar til ég lét undan og þverbraut allar reglur í kjölfarið... maður fer nú að endurskoða það

Nei best maður druslist með hana með sér, hún er svo fjandi skemmtileg ðessi elska, sama hvernig innrætið er

Kveðja Halla hin önfirska

Halla Signý (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 10:07

6 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Ég elska þig líka

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 12.2.2007 kl. 10:28

7 identicon

Ég óska þér góðrar gleði í Holti Ragna mín og mér finnst þú  ekki lítið heppin að vera svona vel kynnt.  Ekki er  ég ein af þeim útvöldu sem geta státað af setu á þorrablóti í Holti er þó fædd og uppalin Önfirðingur, en svona er nú réttlæti heimsins. (: (:

Guja (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 17:10

8 identicon

Ragna mín, elskan mín taktu hana Guju frænku mína með, ekki spurning enda skemmtileg kona, líkt og vill loða við Sandarana, svo er hún svo vel gift,, þannig að hún uppfyllir allar reglur.

Halla Signý (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 09:11

9 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Verður maður líka að vera giftur og vel giftur í þokkabót til að hljóta náð fyrir augum nefndarkvenna í skemmtinefnd Holts Þorrablóts?? Alltaf batnar það. En gleðifréttir í morgunsárið eru að Guju er boðið og ég mæli með því að hún láti sjá sig.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 13.2.2007 kl. 10:32

10 identicon

Nei nei,, það eru engvar reglur um að vera giftur,, bara að vera vel giftur ,

segi nú svona, við getum nú allar státað að því svo það er óhætt að gaspra.

Halla Signý (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 11:30

11 identicon

Flott  Kallinn minn ætlar að mæta...

Auður M. (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband