Dagur 13 - mánudagur

Er vöknuð inn í þennan fallega dag sem bíður upp á nærri heiðan himinn og hvíta snjóhulu yfir allt, mjög jólalegt og fallegt. 

Guðmundur Rúnarsson læknir leit við og var bara hinn ánægðasti og nokkuð lukkulegur með kellu. Óværan er á undanhaldi og tekur líkaminn vel við meðferðinni sem er frábært.

Vegna þess að keyrt var á örlitlu trukki svona fyrst í stað, kannski ívið meira en gegnar og gerist, keyrðist kalcíumið niður fyrir þolmörk og því fór sem fór. Nú ætti amk. að vera komið jafnvægi á það. Röntgenmyndtakan sýndi ekkert óeðlilegt og því hafði ekkert aflagast er ég hneig niður þarna um nóttina svo það eru þó góðar fréttir.

Ég fæ svo að liggja hér í vellystingum í rúminu mínu á meðan gleðiglundrinu verður dælt í líkamann og svo fer að halla í heimferð.

Enn og aftur var Vertinn drifinn í hjólastólinn, fullklædd og brosti sínu blíðasta bæði til starfsfólks og sjúklinga, frelsinu fegin í bili og ekið var heim í blíðskaparveðri þar sem sólin dansaði af kæti yfir heimferðinni...en Adam var víst ekki lengi í paradís....

Þegar heim var komin biðu pönnukökur og önnur dásamlegheit og ég sat í eldhúsinu eins og hinir þar til ég þurfti að fara að leggja mig aðeins. Þar prjónaði ég og horfði á sjónvarp og spjallaði við fólkið og hló og sagði lygasögur og allt hvað eina.

Um áttaleitið helltist yfir mig svo mikill skjálfti og kalda í bland við önnur ónot bara á einu augnabliki að ef jarðskjálftamælar hér á Suðurlandinu hafa ekki merkt þann titring, þá eru þeir bara ónýtir og virka ekki neitt. Klukkutíma seinna var hitinn rokinn upp úr öllu valdi og ekkert annað í stöðunni en að drífa títtnefnda á Landspítalann en mikil mildi var að ekki var búið að formlega útskrifa mig í tölvukerfinu spítalans svo ég gat bara komið þangað beint og lagðist beint í rúmið mitt hreint og fínt.

Þá upphófst sýklalyfjagjöf, blóðprufur og all sorts of svoleiðis og rétt var hægt að dotta inn á milli svo nóttin var ekki alveg átakalaus.

Því ætla ég að reyna að leggja mig núna aðeins

Læt í mér heyra aftur í kvöld, þriðjudagskvöld,  að öllu eðlilegu

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Nei, þetta er bannað! Engar flensur núna takk!

Ylfa Mist Helgadóttir, 29.11.2011 kl. 17:31

2 identicon

Tja, nú má helst ekki hnerra nálægt þér. Hvað er gert i þvi að treba ekki alveg ónæmiskerfi? er það nokkuð gerlegt núna, hmm?
Sukkulaði er örruglega mjög styrkjandi...

Nína (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband