27.11.2011 | 21:34
Dagur 12 - sunnudagur
Getur verið að þeir séu farnir að eitra fyrir mér á spítalanum?? Núna fékk ég lyf , litla pillu sem minnir svoldið á pillur úr kalda stríðinu. Hún var merkt allrahanda útlenskum stöfum og gott ef hakakrossinn var ekki upp í horninu. Ég át hana nú fyrir rest. Ætli þeir séu að reyna að gera mig að kommúnista svo ég kjósi nú einhverja vitleysinga í næstu kosningum?? Ætli þeir séu að reyna að koma mér á geðdeildina svo ég verði til friðs það sem eftir er.....skyldu þeir vera farnir að lesa bloggið og búnir að finna það út að ég sé með áróður gegn stjórnvöldum.....
Auðvitað er þetta bara bull. Það verður að reyna að finna upp á einhverju krassandi að segja þegar lífið gengur aðallega út á að hafa hægðir reglulega og slíkt stöff.
Annars þá er rússneska vinkona mín hún Nína með allt í viðbragðsstöðu út í Moskvu ef á þyrfti að halda. Þar eru heilu sjúkrahúsin sem sérhæfa sig í mínum sjúkdómi og ef hún fengi einhverju að ráða þá væri Vertinn komin þangað fyrir löngu og trúlega orðin alheil:)
Svo á ég nú sérlegan bolvískan sendifulltrúa út í Frakklandi líka sem hefur nú fengið að kynnast veikingum af eigin raun og í gegnum systur sína. Hann færir mér fréttir af því nýjasta í rannsóknum á svona þreytandi óværum og lætur mig vita af því sem hægt er að gera víðs vegar um heiminn í þessum málum. Þannig að þið sjáið að alheimurinn er undir í þessu sambandi.
Annars þá er þetta búinn að vera minn besti dagur í margar vikur amk. í bakinu. Finn það að bakið er að skríða saman og ég á mikið betra með að hreyfa mig. Get farið fram úr án teljandi vandræða og það beggja megin úr rúminu og geri aðrir betur þannig að ég er bara öll að skríða saman. Vonandi er þetta eitthvað farið að gróa.
Röntgenmyndataka í fyrramálið til að kanna hvort einhverjar breytingar hafa orðið á bakinu síðan síðast. Þeir finna ekki neitt, enda er þetta allt í áttina. Gleðiglundrið mun svo væntanlega renna um æðar mínar á morgun í bland við einhverja stera og annan viðbjóð. Kalkið rís í blóðinu þó það vanti enn eitthvað smotterý upp á svo þetta virðist vera að jafna sig í bili amk.
Fékk fullt af gestum í dag. Sem betur fer er ég á einstaklingsstofu enda tign sjúklingur á ferðinni svo það er svo þægilegt að fá gesti. Ég fer heim á morgun og það verður nú sérdeilis fínt.
Heyrumst betur á morgun
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Dadadadammm.... þetta slagar bara upp í spennunna hjá núverandi viðhaldi mínu, honum Arnaldi blessuðum; samsæri, eitur og hvaðeina.
Gott að heyra að þér líði betur. Nú er vonandi allt á uppleið. Farðu samt varlega - sé ekki alveg fyrir mér að það sé tímabært að "sveifla sér" fram úr rúminu.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 21:43
Elsku hjartans vinkona þú ert þvílíkur snillingur svo það er eins gott að það sé farið með þig eins og Prinsessu sé að ræða eða þú ert Prissessa Bestu kveðjur.
Ásta Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 21:44
Þú ert frábær Ragna. Þú ert alvöru prinsessa, það er engin spurning og átt einkaherbergið fyllilega skilið. Þú hefur líka alltaf verið baráttu kona og verður það áfram. Láttu þér batna sem allra fyrst. Kveðja frá okkur í hinni víkinni.
Bogga Arnars (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 22:40
Ef þeim tekst að gera úr þér kommúnista þá skal ég veita þeim hinum sömu vegleg verðlaun!! :-) Svo ég haldi nú áfram með fimmaurabrandarana þá hélt ég að bakið á þér hefði einmitt skriðið of mikið saman! Nú er ég að springa úr hlátri af eigin aulahúmor og kveð því í bili úr snjóugri Víkinni og ber kveðjur frá nýklipptri og rúllaðri mömmusín! Heyrumst við tækifæri. Good luck!
Ylfa Mist Helgadóttir, 28.11.2011 kl. 17:45
Gúdd lökk, tavarítsj, kommissar kommander (svo maður haldi nú áfram á þessum alþjóðlegu nótum).
Ómar Smári Kristinsson (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.