Dagur 11 - laugardagur

Það er svei mér fallegt veður í Reykjavíkinni í dag. Sólin glampar á Perluna í Öskjuhlíðinni sem Gnarrinn vill nú ólmur selja og himininn er fallegur. Vertinum líður nærri eins og þyrnirós sem svaf í heila öld í ævintýrinu enda átti ég mjög góðan svefn í nótt eftir allt vesenið í gær og það var svo gott að sofa að það hálfa væri heill hellingur. Ég er reyndar með ótrúlegar harðsperrur eftir þessi átök gærdagsins mest megnis í vömbinni.

Dagurinn er bara búinn að vera góður en títtnefnd hefur ekkert verið mikið á ferðinni í dag því betra er að fara varlega á tímum sem þessum og halda sig að mestu við rúmið. Gönguferðir hafa því verið af skornum skammti og fjallgöngur engar eða því sem næst.

Búið er að skreyta allt hátt og lágt hér á deildinni enda fyrsti sunnudagur í aðventu á morgun. Það verður í fyrsta sinni í mínum búskap sem lítið sem ekkert verður skreytt fyrir jólin heima við. Kannski skreyti ég bara næst þegar ég kem heim hvenær sem það verður og hef kannski jólatréð uppi í allt sumar.

Vertinum finnst þó vel koma til greina ef títtnefnd skyldi nú álpast til að missa allt hárið fyrir jólin að líma bara greni á skallann og jafnvel hengja jólakúlur á grænar greinarnar og setja svo ljós í alla vega litum hirst og her. Það myndi örrugglega lífga upp á útlit og atgervi.

Annars þá lít ég ekkert svo illa út. Margir halda að ég sé við dauðans dyr, grá og guggin og þora varla að koma í heimsókn til mín, en þeir sem láta sig hafa það sjá það að ég er næstum eins og ég var. Jafn forhert og frökk, kjöftug og læt hvaða vitleysu sem er flakka eins og ég er vön.  

Dagurinn sem sagt búinn að vera til friðs að mestu

Heyrumst á morgun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ha ha ha ha...þú ert ekki húmorslaus og alltaf jafn skemmtilegur penni. Iss jólin koma þótt maður skreyti ekki mikið og jafnvel ekkert...hef stundum ekkert haft neitt jóla,jóla uppi hjá mér. Knús til þín víkari.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 19:31

2 identicon

Þú ert ótrúleg kona .... svona á að tækla þetta - gangi þér vel

Arna (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 19:33

3 identicon

gaman að kíkja til þín áðan, þú ert alltaf söm við þig. :) sjáumst aftur fyrr en seinna!

Steina (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 19:39

4 identicon

Rosalega hlakka ég til að sjá mynd af þér "jólastreyttri" - er að reyna að sjá þig fyrir mér með greni í staðinn fyrir krullurnar þínar. En svona svo þú fáir smáfréttir úr Víkinni - þá er hún smám saman að klæðast í jólaskrúðann, jólaljósin komin á ljósastaurana og jólaljósum í heimahúsum og fyrirtækjum fjölgar dag frá degi sem og jólagardínum. Ekki er ég heldur frá því að smákökulykt leggi fyrir vitin þegar rölt er um bæinn. Snjórinn getur nú varla verið minni - rétt smáföl - en dugar þó til að aðeins birti yfir bænum. Bestu kveðjur af Miðstrætinu.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 19:51

5 identicon

Forhert og frökk

fjandi lítið sofin

sköllótt og skökk

ferlega dofin..........

EN..........

 Skreytum Rögnu greinum grænum

Gleðin skal þá ríkja í bænum.

Ljósin skína í lokka stað

ljómann leggur heim á hlað.

Halla Singy (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 20:01

6 identicon

Bestu kveðjur til þín Ragna, ég les alltaf bloggið þitt og búin að gera það lengi. Veit að ef einhver getur hrist þessa óværu af sér þá ert það þú, og veit þú gerir það með stæl-;) Vildi líka segja að ef ég get eitthvað liðsint fólkinu þínu sem stendur í brúnni fyrir þig núna, þá er það meira en sjálfsagt. Megi dagurinn verða þér góður-;)

Gróa María (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband