Dagur 10 - föstudagur

það væri efni í heila skáldsögu það sem á daga mína hefur drifið bara síðan í gærkvöldi. Kerlingin átti að fara í gleðiglundrið í morgun og var bara farin að hlakka til. Þetta orkuleysi tók svo yfirhöndina algjörlega í nótt og þegar sú er þetta ritar ætlaði að skakklappast á klósettið kl. fjögur í snarleið yfir kellu og Jón Bjarni átti í mesta basli með að leggja mig þannig til að gólfið að ekki hlytist skaði af, hvorki fyrir húsbúnað né líf og limi heimilismanna.

Vertinn náði ekki upp í nefið á sér af undrun yfir því að vera komin á svefnherbergisgólfið svona rétt sí svona en þar lág ég líkt og hver annar vesalingur á gólfinu og gat mig hvergi hreyft enda var bakið að drepa mig. Beita þurfti fortölum að sjálfsögðu í nokkurn tíma til að fá leyfi til að hringja niður á deild og enn meiri samningaviðræður þurftu við títtnefnda á gólfinu til að fá hana til að láta hringja á sjúkrabíl en ekkert annað var í stöðunni. Tveir sjúkraflutningamenn mættu því inn á gólf með spítufjöl og skófu mig upp á hana og drösluðu mér svo upp á sjúkrabíl og beint á bráðamóttöku.

Þar fékk ég morfínsprautur undir húð til að reyna að slaka á og gat ég svona jafnað mig eitthvað. Að endingu komst ég með aðstoð á þar til gert stólaklósett sem sett var við hliðina á rúminu og þar snarleið svo yfir mig að nýju þannig að ég vissi hvorki í þennan  heim né annan. Ég var flutt í snarhasti upp í enn eitt rúmið í og þar voru fest  við mig allskyns heimsins tæki og töl sem mældu alla mína líkamsstarfssemi, andardrátt, hjartslátt og bara allt hvað annað sem nöfnum tjáir að nefna. Þar kom í ljós að það var bara farið að vanta allt kalk í kroppinn en þar hafði ójafnvægi skapast og ég hélt sjálfri mér ekki uppi og þaðan var magnleysið sprottið. Því var byrjað að dæla kalki í kroppinn til að reyna að jafna leikinn á ný.

Þá þurfti að flytja mig á Lansann og úr einu helv...rúminu í annað og þá kom verkurinn með tilheyrandi vöðvakrampa. Þrjár morfínsprautur beint í æð dugðu ekki til að slaka á og það var nú hægara sagt en gert að láta hreyfa sig. Vertinn stjórnaði öllu starfsfólkinu á deildinni og sjúkraflutningsmönnum og ráðskaðist með allt og alla. Ég var spurð að því hvort ég væri vön að stjórna mannskap;) Vertinn glotti rogginn og þóttist nú hafa stjórnað heilu byggðarlagi um árabil svo þetta væri ekki mikið tiltökumál.

Ég komst með öðrum sjúkrabíl á dagdeild og lá þar í allan dag og fékk morfínlyf í kroppinn meðvissu millibili, sem nóta bene virkuðu ekki  sem skildi á verkinn svo segja má að dagurinn í dag hafi verið minn versti verkjadagur í mínu lífi svei mér þá. Um fjögur leitið komst ég svo bara aftur upp á deildina mína og verð hér fram yfir helgi að jafna mig. Verkurinn í bakinu er á undanhaldi og mér líður satt best að segja svo undurvel og er svo glöð yfir því að þessi dagur skuli vera liðinn.

Ég komst ekki í gleðiglundrið í dag vegna þessa og frestast það eitthvað fram í næstu viku sem er í góðu lagi. Allt er í góðu lagi og lífið farið að brosa víð mér á ný.

Gunna Ásgeirs hefur í nógu að snúast í Einarshúsi því mikið er að gera framundan. Upplestur úr jólabókum var í hádeginu en Halla Signý er þar undir, yfir og allt um kring. Kjallarakeppnin var í kvöld og utan um hana halda ungir menn og svona má lengi telja. Það er klárt mál að bæjarbúar ætla sér að bara áfram líf í húsinu þó Vertinn hafi rétt brugðið sér af bæ. Svona má sjá hvernig lífið funkerar í litlum bæ í hnotskurn þegar allir leggjast á eitt

Held ég láti þetta duga í bili

Læt heyra meira á morgun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragna þú ert svo dugleg. Knús á þig og þína.

Hrönn Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 22:51

2 identicon

Þú stendur sannarlega í ströngu kona góð, við þekkjumst ekki en get ekki látið hjá líða að tjá mig um aðstæður þínar. Gangi þér vel og megi góðir vættir ganga þér við hlið. María

María Norðdahl (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 23:03

3 Smámynd: Katrín

Elsku hjartans kerlingin mín, það sem er á þig lagt. Vona að bévítans verkurinn láti þig nú í friði hér eftir svo þú getir fengið þitt gleðiglundur sem fyrst. Baráttukveðjur ráðskona góð:)

Katrín, 25.11.2011 kl. 23:08

4 identicon

Ah, gott var að sjá bloggið þitt, þó innihaldið væri ófagurt. Var búinn að frétta að þú hefðir tekið uppá því að faðma gólf. Ég hlakka til þess með þér að þú losnir við þessa miklu verki.

Ómar Smári Kristtinsson (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 17:08

5 identicon

Elsku kerlingin. Það gengur greinilega ýmislegt á. Gott að þú skulir vera verkjalaus í bili. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með, jafnt jákvæðum og neikvæðum fréttum. Baráttukveðjur.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 19:30

6 identicon

Það sem ekki er á þig lagt! Þú er hetja Ragna mín- haltu þessari jákvæðni áfram..hún kemur sér vel :) Knús frá mér og mínum

Dagga (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband