Dagur níu - fimmtudagur

Afskaplega litlar eru  fréttirnar héðan úr rúminu svo sem en auðvitað af nægu að taka engu að síður. Mér tókst það til að mynda nær óaðfinnanlega í morgun í einni og sömu ferðinni að fara á klósettið og fram í eldhúsið til að fá mér morgunverð og geri aðrir betur. Þar sat ég eitt augnablik og fletti blöðum svona rétt til að sýnast og var svo leidd aftur upp í rúm. Háttvirktur Vert gat svo leyst vind í leiðinni sem er sko sannarlega ekki svo slæmt á svona stundu skal ég segja ykkur:)

Þar sem öll hersingin dvelur nú hjá tengdó til að byrja með verður algjör uppstokkun á hver sefur í hvaða herbergi. Eymingja tengdamamma flytur í  minnsta herbergið í húsinu og þar fær hún að dúsa blessunin einhvern tíma. Hún er þó heppin að hafa ekki þurft að flytja út á svalir eins og títtnefnd stakk upp á í upphafi. Svo verður reyndar að breyta þessu bara eftir behag því kærasti Lilju kemur annað slagið í heimsókn og þá þarf Elsa að færa sig um set og svona er þetta bara. Allt eins og í gamla daga, allir í einum og sama hrærigrautnum og það er bara gott amk. í einhvern tíma.

Annars þá hlít ég að þurfa að auglýsa hér með eftir orkunni minni að hluta. Ekki hefði ég trúað því að ég yrði svona mikill kramaraumingi á svo stuttum tíma. Það er ótrúlegt að  þegar ég rís upp úr rúminu til að ganga fram að glugga svo full af andlegum þrótti ,næ ég kannski bara hálfa leið því þá er ég nærri fallinn í yfirlið af magnleysi og það þarf að fylgja mér upp í rúmið aftur.

Ég ætla samt í sturtu í kvöld og sjæna mig til fyrir gleðiglundrið í fyrramálið.

Heyrumst á morgun

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Knús á þig elsku Ragna mín, Þú ert alveg einstök

Magga Lilja (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 22:58

2 Smámynd: Katrín

Það er nú enginn aumingjabragur hjá frúnni mín kæra..orkuleysið er örugglega lagt á þig svo þú hvílir þig nú almennilega:) Gangi þér vel í dag. knus og kram á danska vísu:)

Katrín, 25.11.2011 kl. 09:27

3 identicon

Elsku Ragna. Sendum þér baráttukveðjur. Gangi þér sem allra best :)

Kv. Jói og Rósa.

Jói og Rósa (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband