23.11.2011 | 20:20
Dagur átta - miðvikudagur
Það var nú ekki frítt við það að það væri nokkuð gott að láta aka sér í hjólastólnum út af Landsspítalanum í dag. Margir gestir á göngunum litu þó með meðaumkun á Jón Bjarna að vera að hafa þetta skar með sér heim en það beit á hvorugt okkar enda fer leiðin upp á við hér eftir.
Bara það að þurfa að ferðast milli staða, bíða eftir því að lyfin yrðu tilbúin á apótekinu, keyra heim og labba stigann, gerðu það að verkum að allt þrek títtnefndrar hvarf eins og þökk fyrir sólu og ég datt ofan í rúmið um leið. Ég held bara hreint út sagt að ég hafa aldrei á ævinni verið eins þreytt og orkulaus á ævi minni. Ég hef varla komist út úr rúmi í allan dag. Þetta mun fylgja mér eitthvað áfram. Það mun þó verða tilhlökkunarefni þegar bakverkirnir hverfa og ég get farið að hreyfa mig skaplega án þess að þurfa að passa mig svona í hverju skrefi.
Mestu viðbrigðin verða auðvitað að sætta sig við það að geta ekki gert hvað sem er, hvenær sem er eins og maður er vanur. En það auðvitað kemur eins og ég hef marg sagt frá hér en þar vinnur þolinmæðin þrautir allar
Það er þó alveg yndislegt að vera komin heim
Ég er þó komin með tölvuna við hlið mér núna, prjónana og símann og fer að rétta úr kútnum hvað úr hverju. Morgundagurinn mætti vera aðeins betri en dagurinn í dag. Gleðiglundrið fæ ég ekki aftur fyrr en á föstudag og þá fær ég einnig sterana og þá auðvitað fæ ég meiri þrótt rétt á meðan.
Ég vil enn og aftur nota tækifærið og þakka öllum fyrir falleg bréf með óskum um góða bata, ég fæ endalaus bréf með góðum kveðjum. Öllum sem hringja daglega, fjölskyldu minni og góðum vinum sendi ég þúsund kossa.
Verð að láta þetta gott heita í bili
Heyrumst á morgun
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Þetta er langhlaup Ragna mín, sumar stundir góðar en aðrar verri. Með bjartsýnina að vopni og þína léttu lund munt þú mjakast að marklínunni. Mundu að góðir hlutir gerast hægt :) Knús mín kæra og mundu að hvíla því:)
Katrín, 23.11.2011 kl. 21:50
Baráttukveðjur til þín Ragna, það kemur sér vel að þú ert kraftakona. Bestu kveðjur til ykkar.
Gróa Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 08:29
Baráttukveðjur til þín.
Helga Dóra (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.