Dagur sjö - þriðjudagur

Vaknaði klukkan fimm í morgun til að fara á klóið og gat ekki sofnað aftur. Þurfti að fá tvær léttar verkjatöflur til að koma ró á nokkur óþægindi og svo helltust gleðilyfin yfir aftur með morgunmatnum. Ég sortera þau öll með mikilli lagni. Læt þau í þar til gerðar hrúgur og þá fara verkjalyf saman, steralyf saman og allt hitt helvítis draslið bara í einn haug. Svo ég ég þetta allt saman hvert á eftir öðru ofan í mig en skrifa hjá mér til mynnis hvað hvert og eitt af þessu heitir upp á seinni tíma. Þetta á allt að gera mér mjög gott að til að stilla sjúkdóminn minn af.

Í dag fæ ég svo eina sprautu krabbabeinslyfja sem ég ætla að nefna gleðiglundur hér eftir og þá hef ég aldeilis hafið lyfjameðferðina og gert bara með nokkrum stæl. Á ellefta degi lýk ég við fyrstu lyfjameðferðina ( hún gæti þó dregist í einn tvo daga svona fyrst) en þá fæ ég bara 10 daga frí og vonandi heldur líkamsbúskapurinn bara áfram að byggjast upp í rétta átt á meðan. Það verður þó auðvitað að fylgjast vel með kellu rétt á meðan en ég er nú staðráðin í að standa mig og passa mig svona nokkurn veginn.

Þetta verða væntanlega fjórar til sex meðferðir allt í allt áður en ég fer í hina háskammtameðferð sem er síðasti spretturinn í aðalorrustunni en þá verð ég núllstillt og fæ glænýjar stofnfrumur úr mér í tugþúsunda tali og mínum gömlu bara kastað eins og hverju öðru rusli. Í meðferðinni verð ég meðhöndluð sérstaklega og öllu blóði dælt úr mér í hringrás í skilvindu sem skilur heilbrigðar stofnfrumur frá og svo eru þær bara geymdar í frystikistunni með slátrinu og brúkaðar svo þegar þar að kemur. Þetta þarf kannski að gerast í nokkur skipti eða þar til nægilegar margar stofnfrumur hafa safnast.  Eftir háskamtameðferðina byrja ég svo bara með hreint borð , þarf mínar ungbarnasprautur eins og hver annar hvítvoðungur og þarf að byggja upp mótefni líkamans að nýju. Það hlotnast ekki öllum að fá gefið upp á nýtt;). Auðvitað verður fylgst með mér eins og ungabarni það sem eftir er og vakað yfir hverju mínu skrefi og það verður sko aldeilis gott.

Biggi svili kíkti aðeins inn og Elsa að sjálfsögðu eftir skólann, Lilja ljósberi og Jón Bjarni litu við einnig fyrir utan allt starfsfólkið sem keppist við að stjana við mig á alla lund. Ég losnaði við stóru sprautuna í dag enda þarf ég ekkert gleðiglundur aftur fyrr en á föstudaginn.

Líðanin nokkuð góð síðan um miðjan dag og ég fer í gönguferðir um ganginn af og til. Hef það semsagt fínt

Bestu kveðjur heim

Læt heyra í mér aftur á morgun

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gangi vel og eins og sagt er á ensku. God´s speed. má ég vera blog vinur.

Kv V

Valdimar Samúelsson, 22.11.2011 kl. 20:26

2 identicon

Elsku Ragna,

það verður að segjast eins og er að það er virkilega gaman að lesa póstana þína (samt svolítið kjánalegt að segja þetta) en ég hef trú á því að það hjálpi að fara í svolítinn Pollyönnu leik við svona aðstæður - gangi þér vel mín kæra í þessu verkefni - knús og klemm

kv. Arna og Jón Ingi

Arna (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 21:18

3 Smámynd: Katrín

Í allri þinni hremmingu tekst þér að gleðja gamla konu vestur á fjörðum með þínum bráðskemmtilegu pistlum:) Gangi þér sem allra best mín kæra og ég fylgist með. Kveðjur til fólksins þín:)

Katrín, 22.11.2011 kl. 22:07

4 identicon

Gangi þér vel Ragna mín,,,kv úr víkinni

Benni Sig (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 23:26

5 identicon

Óska þér alls hins besta.  Gott að vita að hetjur eins og þú skuli búa í okkar samfélagi.  Kveðjur frá Ísafirði Henry

Henry Bæringsson (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 14:20

6 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Bestu kveðjur til þín

Níels A. Ársælsson., 23.11.2011 kl. 17:13

7 identicon

Okkur er oft hugsað til þín og ykkar, Ragna, og sendum ykkur hlýja strauma.  Þú ert baráttukona og nú kemur það sér vel.  Góðar kveðjur.

Hlynur og fjölskylda.

Hlynur Hafberg Snorrason (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 20:48

8 identicon

Baráttukveðjur til þín kæra Ragna! Megi allar góðar vættir styrkja þig á þessum tímum og hlökkum til að heimsækja þig í Einarshúsi þegar þú ert búin að smúla þessu burt frá þér.

Helga Vala (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband