21.11.2011 | 20:02
Dagur sex - mánudagur
Ég svaf eins og ljós í nótt þótt bakið sé enn ögn til trafala. Það væri reyndar eitthvað skrítið ef ég svæfi ekki ekki eins og engill eftir öll þessi lyf af allra vega litum. Ég fæ þó hvorki bláar né bleikar töflur sem er kannski eins gott og væri ekki ábætandi ofan á allt hitt.
Búið er að taka fjölmörg blóðsýni í morgun enda fer krabbameinsmeðferðin að bresta á innan skamms. Morgunmaturinn bragðaðist svo undurvel og allar 22 pillur morgunsins þar með 10 steratöflur, runnu niður með tíð og tíma og núna er líðanin bara mjög góð.
Jón Bjarni kom og leiddi mig fram ganginn og aftur til baka og síðan heiðraði Vertinn aðra gesti deildarinnar með höfðinglegri komu sinni í plokkfisk í hádeginu. Þá var líka þrekið búið að mestu í bili. Smá leggja í hálftíma þá kíkti Elsa rétt augnablik og eftir það fór ég í galvösk í sturtu og viti menn, það var eins og að vera undir himneskri sælubunu og mér tókst að þrífa mig eins og manneskja og ekki bara það heldur þurrka mér og klæða mig líka :). Það var frábært
Auður hafði kíkt inn rétt á meðan ég var í sturtunni og skildi eftir nammi og heilsusafa svo orkan eftir sturtuna kom með það sama.
Sorglegar eru fréttirnar sem berast að heiman í dag er ungri konu var kippt út úr samfélaginu okkar eins og hendi væri veifað á örskotsstundu eru hörmulegar. Konu sem var sólskin sinnar fjölskyldu og gaf öllum jafnt af því sem hún hafði að bjóða. Brosið hennar kom ætíð frá hjartanu og því var beint til allra.
Við þær fréttir hugsaði Vertinn hve mikil lukka hvíldi yfir mér að þurfa aðeins að berjast ögn við þennan sjúkdóm eitthvað áfram, fá að hafa alla sína hjá sér og njóta lífsins eins mikið í botn og hægt er miðað við aðstæður. Finna þennan góða stuðning og vita að þar eru allir sem vilja allt fyrir mig gera. Það er sko mikið lán og guðsmildi. Það er mjög erfitt að missa ástvin svona snökt svo ekki sé talað um ungt fólk í blóma lífsins og lífið kúvendist hjá fjölda fólks á einu augnabliki og það er bara meira en að segja það að takast á við það.
Ylfa Mist hefur tekið mömmu svo föstum tökum og því hlutverki að verða að koma í minn stað sem dóttir hennar að hún heimsækir hana reglulega en hún vinnur einnig við umönnun á Skýlinu þess á milli svo hún hittir hana oft. Ylfa prentar út bloggið mitt og les svona það helsta fyrir mömmu og lætur það líta út fyrir að það séu persónuleg bréf frá mér til hennar sem er reglulega fallega gert. Þess vegna fylgir með koss til kæru mömmu frá mér.
Andri og Þórunn eru á leiðinni með rjúkandi swiss mocca beint úr kaffihúsinu og ég á súkkulaði sem mér var fært í dag sem ég geymi til að bragða með.
Annað krabbameinslyf bíður þess að þræðast upp æðar mínar á morgun og svo er nú spurningin hvort ég fari ekki bara heim á miðvikudag eða fimmtudag. Ég vona það amk.
Bestu kveðjur í litla þorpið mitt fyrir vestan og geymi ykkur allar góðar vættir
Heyrumst á morgun
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sendi þér mínar bestu baráttu- og batakveðjur elsku Ragna!
KV frá Ísó
Sóley Veturliða (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 13:38
Baráttu kveðjur til þín ofurkona :)
Alma Björk (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 17:26
Þakka fyrir Ragna þá erum við vinir.
Gangi vel í báráttunni og þú munt sigra. kv V.
Valdimar Samúelsson, 22.11.2011 kl. 22:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.