Dagur fimm - sunnudagur

Bakverkurinn alveg að drepa mig en svaf þó vel. Minnstu munaði að ég fylli nærrum í yfirlið en datt þó ekki í hug að kalla eftir hjálp, til hvers?? Ég verð þó væntanlega að gera mér grein fyrir því að þarf bara sterk bein til að vera kona eins og ég og á meðan þau eru að byggjast upp þarf ég á hjálp að halda. Ég fæ því fastan morfínskammt daglega kvölds og morgna hér eftir og eitthvað áfram svo ég geti verið á fótum pg gert eðlilega hluti. Ég fæ að fara í bæjarleyfi í dag og svo mun líða að því að ég komist "heim"  til að búa þar milli meðferða.

Beinþynning eða jafnvel smá beineyðing er komin í upphaldleggi og fótleggi svo þess má alveg vænta í framtíðinni að ég hlaupi ekki upp neina glæpamenn en það verður þá svo að vera. Engar skemmdir eru þó þess fallnar að til þurfi að senda mig í geisla sem eru alveg æðislegar fréttir. Það vekur furðu læknanna hve sjúkdómnum hefur gengið langt og að sama skapi náð illa að leggja mig að velli og í raun er það undarlegt hvað ég er, sem sýnir það að ég er kjarnorkukerling, sterkbyggð og læt ekki einhvern auman krabba setja mig út af laginu svo neinu nemi. Hvergi sló ég af í vinnu í Einarshúsinu í sumar en fann þó að ég var aðeins farin að þreytast á köflum og það þykir bara kraftaverk miðað við allt og allt að ég skulu hafa haldið törnina út.  

Allar lyfjagjafir miðast nú að því að styrkja beinin eins og hægt er og það hefst með hægðinni eins og allt annað í þessu sambandi.

Það var klárt mál að ég fékk heimsókn að handan í gærkvöld því handayfirlagnirnar voru undir yfir og allt um kring. Hendur voru settar á brjóstið og höfuðið og fullt af fólki stóð í kringum rúmið mitt. Ein konan var í hvítum gamaldagshjúkrunarkjól með stífan hatt en hitt fólkið bara venjulega klætt. Þau hlúðu vel að mér og gerðu sitt besta til að vinna bug á meininu mínu. Síðan rifnaði glugginn upp í mikilli vindhviðu og opnaðist upp á gátt og allir voru horfnir þegar stúlkan kom og lokaði. Það hefur reyndar komið kona að rúminu mínu í tvígang áður en ég veiktist. Jón vaknaði við það að yfir rúminu mínu stóð kona og fylgdist með mér og nokkrum dögum síðar vaknaði ég við það sama svo það eru nógir um að gæta mín, bæði lífs og liðnir.

Ég fór rúnt ofan í bæ í dag í bæjarleyfinu og fór svo í Stífluselið. Gat setið smá fram  í sófa smástund en morfínið sló mig svo alveg út. Ofurkonan er því farin tímabundið frí og þreytan og þróttleysið er að ná yfirhöndinni. Það mun verða svo næstu mánuði og best að sætta sig við það strax. Ég mun þó koma betur til meðvitundar þegar bakið hefur lagast og morfínið verður óþarft og þá koma betri tímar með blóm í haga.

Ég held reyndar að ég verði ekki aftur ofurkona en sætti mig bara við að vera venjuleg kona það sem eftir er ;)

Núnar er ég komin aftur á spítalann þar sem starfsfólkið er svo sérlega yndislegt svo ekki væsir um mig hér. Geta má þess að Helga lækni á Ísafirði hefur verið hælt fyrir að hafa sýnt hárrétt viðbrögð er hann sendi blóðsýni mín strax suður til rannsóknar. Það er nefnilega ekkert endilega gefið mál að læknar átti sig á þessu strax.

Ég er rétt sem stendur skýr í kollinum og mér líður vel. Á reyndar von á stóra lyfjaskammtinum mínum sem á eftir að rota mig á endanum. Krabbameinsmeðferð bíður mín á morgun og hver veit nema þig fáið fleiri fréttir þá.

Bið að heilsa öllum heima

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æðislegt að heyra af þér Ragna og vonandi kemstu heim sem fyrst. Ekki laust við að ég skammist mín fyrir að vorkenna mér yfir smámunum í samanburði við hvað þú ert að ganga í gegnum. Knús úr Víkinni fögru.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 21:36

2 identicon

Elsku hjartans vinkona ég er bara orðlaus guð gefi að þú hristir af þér og hjartans kveðjur og óskir um góðan bata. Kveðja Ásta á Þingeyri.

Ásta Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 22:03

3 identicon

Held það sé nú í lagi að vera engin ofurkona í byrjun krabbameinsmeðferðar! Vonandi að þú komist heim til fjallanna og fjörunnar til að fá andlega næringu.

Bestu kveðjur til þín ofurkona!

Ásta María (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 22:35

4 identicon

Baráttukveðjur til þín Ragna mín, hugsa til þín.

Elín Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 23:18

5 identicon

Hvernig getur þú í ósköpum verið svona klár á öllum þessum lyfjum? ef  er ekki ófur orku hörku kona þá veit ég ekki hver á það að vera!

Hvar í bakinu eru veikir hlekkir? miðja, neðarlega? heilsum þeim öllum - heilbrigðum og þessum sem eigi að vera það bráðum.

Nína og Smári (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 04:11

6 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Hæ þið öll og ætíð takk fyrir keðjurnar.

Nína og Smári: Orsakir verkjanna í bakinu eru niðurbrot í teimur hryggjaliðum, fyrir miðju og neðst hægra megin í hryggnum. Það gerir það að verkum að ég get ekki gert þá hluti sem ég gerði umhugsunarlaust fyrir stuttu síðan.  Ástæðan er sú sjúkdómurinn hefur gert það að verkum að mergið er að mestu horfið en brjóskið er fínt en beinið frekar veikburða. Um leið og hægt verður að snúa ofan þessum óæskilegu frumumyndun og jafnvægi kemst á líkamsbúakapinn þá fer beinbergurinn að vaxa að nýju og búast má við að ég verði orðin góð eftir tvær til þrjár vikur. Beinin verða þó ætið eitthvað ögn veikari en ella. Ég bíð bara stent eftir því að komast "heim" og geta farið að hafa mér eins og fífl að nýju:)

Kveðja til ykkar allra

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 21.11.2011 kl. 09:37

7 identicon

Hugsa til þín ótt og títt og sendi alla mína engla :)

Knús

Hrafnhildur

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 12:53

8 identicon

Gangi þér vel og góðan bata

Jóhann (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 19:01

9 identicon

eg skil ekki allt, Ragna, men eg reyni. Gangi þer vel! Kedja frå alle i Raustein!

Pål Ranestad (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband