19.11.2011 | 15:32
Dagur þrjú - föstudagur
Eftir að hafa gleypt 21 töflu með morgunmatnum fór ég í segulómun og þar á eftir voru öll bein í líkamanum röntgenmynduð í baka og fyrir. Komið er út úr röntgenmyndum frá í gær og þar komu þær "góðu" fréttir að einungis eru komin niðurbrot í tvo hryggjaliði í bakinu sem skýra þessa bölvaða bakverki og þeir eru næstum fallnir saman.
Úr ómskoðuninni hefur einnig komið í ljós að ekkert þrýstir á mænuna þannig að hún er örugg, svo miðað við þær upplýsingar sem eru komnar núna þarf ég ekki á geislameðferð að halda sem er mikill léttir þó svo að ég sé að rembast við að kvíða ekki neinu. Hryggurinn virðist því vera óskemmdur og nokkur sterklegur við fyrstu sýn.
Þá er markmiðið að komast í veg fyrir bakverkina og verður jafnvel farið í morfínskyld lyf til að halda þeim niðri meðan þetta gengur yfir. Ég fæ lyf gegn beineyðingu beint í æð á morgun sem styrkir beinin og annað efni sem framkallar merg við hryggjaliðina og eftir tvær til þrjár vikur verð ég orðin jafngóð ef ekki betri en ég var fyrir í bakinu.Til er ætlast að krabbameinsmeðferðin hafi svo hemil á þessum óæskilegu frumum sem framleiða þessi óþörfu prótein í gríð og erg og þá sé mergnum í beinunum engin hætta búin.
Núna hef ég fengið svefnlyfi og hjúkkan er á leiðinni með morfínið
Ég blogga aftur á morgun, laugardag, ef ég verð vöknuð
Bið að heilsa öllum heima
klukkan er núna 23:00
ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.