Dagur tvö - fimmtudagur

Vertinn tók daginn snemma í morgun ( fimmtudag) enda átti títtnefnd stefnumót við blóðmeinalækninn góða á Landspítalanum. Dagurinn byrjaði þó ekki þrautalaust því það er erfitt að venja sig af því að geta ekki gert mjög hversdagslega hluti .því þegar ég beygði mig niður til að setja prjónadótið í pokann helltist fjárans verkurinn yfir af öllum krafti svo ég datt kylliflöt og lág algjörlega ósjálfbjarga á gólfinu. Þá voru nú góð ráð dýr því það er hægara sagt en gert að lyfta sér upp af gólfi svona á sig kominn, en með hægðinni tókst það og  góðri hjálp. Það hafði auðvitað sitt að segja að ég var búin að taka stóra lyfjaskammtinn um morguninn og kvöldið áður hafði ég í einhverju bríeríi tekið bæði kvöldskammtinn og skammtinn sem ég átti á taka í morgun svo ég vissi hvorki í þennan heim né annan og var bara alltíeinu farin að tína blóm á rósrauðu skýi.

Tittnefnd var auðvitað að drepast í verkjum en komst þó klakklaust á spítalann og úr bílnum drösluðu Andri og Elsa mér í hjólastól og komu mér nánast tímanlega til blómsjúkdómalæknisins góða. Þar gat hann auðvitað ekki á sér setið og tók upp sínar stærstu sprautur sem hann fann til að ná litningum úr mergnum í bakinu. Það gekk nú ekki þrautalaust því svo asskoti hart er í kerlingunni að hann átti í mesta basli með að koma nálinni í gegn um beinið, sem er auðvitað betra en verra, það er gott að hafa sterk bein.  Það tókst þó allt á endanum og ég hélt að hann hafi fundið meira til en ég eftir öll þau ósköp. Það á þó eftir að koma í ljós hvert einhver beinþynning er hafin en skv. blóðsýni sem tekið var í dag virtist kalkið í blóðinu innan eðlilegra marka.Læknirinn var búinn að skoða sýnin sem hann tók daginn áður og þar uppgötvaðist að sjúkdómurinn er búinn að vera að grassera í laumi nokkuð lengi, sem er auðvitað síðra. Þessi prótein sem þessar frumur framleiða eru venjulega uþb.3% í venjulegum einstaklingi en 70 - 80 % í mér sem gert hefur það að verkum að aðrar frumur eru á undanhaldi og hafa ekki getað staðið sig sem skildi. Blóðfrumur hafa td, ekki lengur pláss til að framleiða blóð svo það mun koma að því að ég þurfi að þiggja blóð úr öðrum einstaklingi og þá ætla ég að fara fram á að það verði úr Vestfirskum kraftajötni.  Meðferðin byrjaði strax og 10 steratöflur hurfu eins og dögg fyrir sólu, ásamt velgjuverkjalyfi og einhverju nýju verkjalyfi ofan í Vertinn. Þegar það var búið var settur upp æðaleggur og þá komust nú hjúkkurnar í stuð því tvennalags lyf voru sett í æð ásamt saltvatni. Skemmst er frá því að segja að þessi sterka meðferð fór mjög vel í mig og ég mér hefur liðið nokkuð vel í dag og það boðar svo sannarlega gott.

 Eitt oggulítið áhyggjuefni bíður úrlausnar á morgun en tekin var röntgenmynd af öllum hryggnum og ef þar leynast æxli þarf að nota geislameðferð. Betra væri ef hægt væri að komast hjá því en ef það er raunin rúlla ég því upp eins og öllu öðru. Ég ligg á landspítalanum og hef ekki fengið nettengingu ennþá, þess vegna birtist blogg dagsins í dag ekki fyrr en á morgun ( föstudag) . Ég fór auðvitað fram á einkasvítu en ekki var hægt að verða við því svo ég ligg á stofu með gamalli konu sem er algjör kómedía.

Ég hafði klætt mig í hlébarðabuxurnar  til að ganga í augun á læknunum en sá draumur var sálaður um leið ég mér var skaffaður dýrindis sjúkrahúsklæðnaður sem svona líka smellpassaði.

Ég fer heim í Stífluselið til tengdó, öðru nafni Florens Nætengeil um leið og bakið verður til friðs og get vonandi verðið heima meira og minna og komið bara reglulega í meðferðir á spítalann.

 Mér á að geta liðið vel og hef alla burði til að ná mér svona nokkurn veginn og jafnvel verður hægt að halda þessu vel niðri. Búast má við að þetta taki eitt til eitt og hálft ár að komast yfir þetta svona að mestu. Jón Bjarni og Lilja koma á morgun ef allt gengur eins og  til er ætlast þá verður öll fjölskyldan saman sem verður frábært. Búast má við að höfð verði hér veturseta svona að mestu í höfuðborginni.

Gaui bróðir hefur það verkefni að aðstoða Gunnu í Einarshúsi og heimsækja mömmu á skýlið. Hún er komin dáldið út úr heiminum og áttar sig ekkert sérstaklega á aðstæðum sem er mjög gott. Hún hefur nóg með að höndla allt sem er að gerast í kollinum á henni.Bestu fréttirnar eru reyndar þær að ElínarAnton fór í gegnum svipaða meðferð hjá þessum sama læknir og hver maður getur séð hvað hann hefur náð sér vel. Ég ætla líka að hlaupa hann uppi á endanum og þá læt ég hann bjóða mér upp á kleinuhring, kókosbollu og kók.

Sem sagt þessi dagur bauð upp á góðar fréttir og aðrar sem eru ekki alveg eins góðar. En hann er liðinn og á morgun tekur við nýr dagur sem verður tæklaður eftir behag.

Sendi meiri fréttir  á morgun

Bið að heilsa öllum heima

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að fá fréttir , gangi þér vel

Halla Signý (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 15:40

2 Smámynd: Katrín

Jæja mín kæra ertu þá orðin eign Ríkisspítalans? Frábær skrif hjá kjarkaðri og jákvæðri konu sem kallar ekki allt ömmu sína:) Spurning hvað sé eiginlega í vatninu í Víkinni...tvö ungmenni á örfáum árum sem greinast! Bestu kveðjur til þín og þinna og þakka þér fyrir að leyfa okkur að fylgjast með. Knús í hús:)

Katrín, 18.11.2011 kl. 15:56

3 identicon

Sæl Ragna ! helvíti er að heyra svona fréttir.... en sjálfsagt verra ef maður er sjálfur sjúklingurinn. Ég hef samt ekkert rosalegar áhyggjur af þér nema ef vera skyldi að þú yrðir alveg húkkt á vímuefnunum ! hahahaha en við þekkjum bæði leiðina til að losna undan þeim,þegar þar að kemur og engin ástæða til annars en nota það sem til þarf við svona aðstæður ! en mig langaði bara að óska þér og þínum góðs gengis og bata í baráttunni sem framundan er. Ef það er eitthvað sem ég get aðstoðað við hérna fyrir vestan er ykkur velkomið að hafa samband ! ef þig vanta eitthvað til að lesa setti ég slóðina á gamla blogginu mínu,sumir gátu brosað að því,er reyndar hættur að nenna að blogga eftir að facebook náði mér . Kær kveðja

Þórir Bjartmar Harðarsson Tóti (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 16:22

4 identicon

Gott að fá fréttir af þér og þakka þér fyrir að leyfa okkur hinum að fylgjast með hvernig gengur. Þú tæklar þetta eins og allt annað sem þú tekur þér fyrir hendur. Knús.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 18:27

5 identicon

Gotta heyra hvað þú ert jákvæð frænka, eftir allt sem þið eruð búin að upplifa er það örugglega einstakt.

Langaði bara að senda þér kveðju og ég hugsa hlýtt til þín. Ég skal vera dugleg að kíkja á mömmu þína

þegar ég er heima. Kær kveðja .

Magga Lilja (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 19:21

6 identicon

Sæl Ragna mín, þessar lýsingar minna mig á mergprufurnar hjá Tona, sú seinasta var sínu verst og ég var komin með tárin í augun og Guðmundur alveg miður sín yfir hvað þetta var vont.  Þið getið rifjað þetta upp saman og metist um hvort var verra þegar þú kemur í kleinuhringinn, kókosbolluna og kókið :)  En þú er algjör hetja Ragna mín og kemst í gegnum þetta á endanum.  Við vitum að þú ert í góðum höndum á 11G, þar er frábært starfsfólk sem leggur sig virkilega fram.  Bestu kveðjur frá okkur og gangi þér vel áfram.  Ella og Toni.

Elín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband