Nýtt verkefni

Nú hefur Vertinum í Víkinni verið falið nýtt verkefni og vandasamt. Blóðsjúkdómur hefur tekið sér bólfestu í skrokknum sem ber heitið "Mergfrumuæxli" og hefur ráðist með látum á bakið og gert það að verkum að það virkar bara alls ekki og títtnefnd getur sig varla hrært nema uppfull af töflum af allskyns sortum hinna ýmsu pilla sem lina þjáningarnar. Einhver fruma hefur óforvendis stökkbreyst og margfaldað sig og farið að búa til prótein sem ég hef ekkert að gera við á kostnað annara efna í blóðinu.

Það byrjaði auðvitað þannig í sl. viku að sú er þetta ritar datt í gólfið heima og gat sig hvergi hreyft svo á endanum þurfti sjúkraflutningsmenn til að skafa títtnefnda upp af gólfinu líkt og hverja aðra tyggjóklessu og flytja á sjúkrahús. Þursabit var talið sökudólgurinn í fyrstu og við það sat þar til annað kom í ljós.

Brugðist var við í snarhasti eftir að blóðprufan sýndi óeðlilega hátt sökk og títtnefnd var send uppdópuð í flugvél til Reykjavíkur um hádegisbilið til eins besta læknis á landinu í blóðsjúkdómum og áttum við stefnumót í dag. Hann kom mjög vel fyrir og var hinn elskulegasti þar til hann fór að sjúga merginn upp í helvítis sprautuna. Þar fór hann eiginlega alveg með það en svo jafnaði það sig og ég fyrirgaf honum um hæl. Það var ekkert sérstaklega þægilegt en tók sem betur fer fljótt af og allt komst í eðlilegar óskorður á ný.

Strembin meðferð er fyrir höndum þar sem reynt verður að kvelja títtnefnda og pína eins og hægt er en þeim verður varla skotaskuld úr því. Reikna má með að lyfjagjöf verði fyrir valinu eða geislameðferð og jafnvel stofnfrumuskipti en þetta mun allt koma í ljós í fyrramálið því byrja að meðferð strax á morgun.

Lesendum til léttis skal það upplýst að sú er þetta ritar er ekki hið minnsta kvíðin og í raun hlakkar til að takast á við þetta verkefni og hafa betur og enginn efi er í mínum huga að það mun takast. Ég hef gefið þeim tíma til 1. maí næstkomandi til að klára meðferðina og gera mig góða fyrir átök sumarsins í Einarshúsi.

Allir eru boðnir og búnir til að aðstoða á alla lund og hefur Gunna Ásgeirs tekið við allri yfirumsjón í Einarshúsi og fjölmargir aðrir ætla að vera henni til aðstoðar. Nú veit maður hverjir eru vinir og það má segja með sanni að Vertinn virðist bara nokkuð vinamargur ef vel að að gáð.

Fjölskyldan verður öll samankomin hér syðra næstu vikurnar því húsbóndinn og Lilja eru væntanlega næstu daga. Við munum búa hjá tengdó og þar væsir ekki um mann. ( hún bitaði meira að segja ofan í mig matinn í kvöld:). Það munar öllu að hafa fólkið sitt hjá sér á svona stundum.

Ég vona að geta sagt eitthvað meira krassandi á morgun.

Kveðja til allra heima


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðann og sterkann bata :)

Ásdís Gústavsd (IP-tala skráð) 16.11.2011 kl. 23:35

2 identicon

Sendi þér baráttukveðjur héðan frá Djúpavík á Ströndum.  Efast ekki um að þú stendur af þér þessa árás. 

Eva Sigurbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 00:09

3 identicon

Gangi þér sem allra best.

Anna Helga (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 00:11

4 identicon

Bestu kveðjur til þín og gangi þér vel í þessu verkefni ,það hjálpar þér örugglega  mikið hversu bjartsýn þú ert.

Bestu kveðjur frá Ísafirði

Sigurrós og Friðrik .

Sigurrós Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 00:48

5 identicon

Knús til þín. Baráttukveðjur og auðvitað muntu sigra kona!!!

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 05:14

6 identicon

Kærar kveðjur til þín Ragna og gangi þér vel í þessari baráttu. Hef fulla trú á að þú standir uppi sem sigurvegari!

Þórir Guðmundsson (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 05:37

7 identicon

"Ég hef gefið þeim tíma til 1. maí næstkomandi til að klára meðferðina og gera mig góða fyrir átök sumarsins í Einarshúsi." hehehe:) Það verður sko ekki af þér skafið að þú ert hörkutól!

Sendi þér alla mína batastrauma kæra Ragna og gangi þér sem allra best!

Harpa Oddbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 08:30

8 identicon

Gangi þér vel Ragna og ykkur öllum. Kraftur bænarinnar er góður og ég hef þig í mínum.

Gunna Gumma Hafsa (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 10:09

9 identicon

Kærar kveðjur til þín Ragna mín og gangi þér innilega vel.

Sigurbjörg Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 14:38

10 identicon

Góðan bata Ragna mín er með hugann hjá þér .

Alma Björk (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 14:52

11 identicon

Batakveðjur til þín Ragna og gangi þér vel, þú ert nú kjarnakona.

Gróa Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 14:53

12 identicon

Vesen er á þér manneskja. Það er eins gott að þú ert enginn aukvisi. Þó ég viti að þú náir þér sjálf, þá ætla ég að senda þér holl og kröftug hugskeyti.

Ómar Smári Kristinsson (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 14:53

13 Smámynd: Faktor

Bata- og baráttukveðjur til þín dugnaðarkona, úr Hæstakaupstaðnum á Ísafirði.

Faktor, 17.11.2011 kl. 14:55

14 identicon

Baráttukveðjur til þín Frú Ragna baráttukona! :o) Þú munt að sjálfsögðu sigra!

Hugsum hlýjar baráttustrauma til þín.

Tinna Hrund Hlynsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 15:03

15 identicon

Bestu kveðjur til þín Ragna - gangi þér sem allra best í þessari baráttu.

Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 15:18

16 identicon

Innilegar kveðjur til þín Ragna og óskir um skjótan og góðan bata.

Inga Sigga (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 15:59

17 identicon

  • Baráttu og batakveðjur frá okkur Snorra, þú tekur eflaust á þessu með dugnaði eins og þú ert þekkt fyrir Ragna, hef fulla trú á að þú komir sterk inn í maí eða fyrr. Agnes 

agnes ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 16:13

18 identicon

RAgna mín gangi þér sem allra best í þessari baráttu hugur okkar er hjá ykkur. Góðann bata.

halldóra þorvaldsdóttir (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 18:04

19 identicon

Mikið er leitt að heyra þetta. Þú hefur rétta hugarfarið og það er gott. Bestu óskir um að allt gangi sem allra best og þú verðir klár fyrir sumarið :O)

Bið að heilsa Jómba.

Kær kveðja, Jóna

Jóna Imsland (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 19:42

20 identicon

Gangi ykkur sem allra best í þessari baráttu.Bestu kveðjur til ykkar allra.

Jón Svanberg Hjartarson (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 20:04

21 identicon

Það er ekki spurt að baráttuandanum! Fyrstu og fremst batnaðar- og baráttukveðjur til þín ljúfa Ragna!

Ásta María (IP-tala skráð) 17.11.2011 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband