Seiðandi, sjóðheit og sæt

Ég eignaðist einkaflugmann í gær. Andri stóðst prófið með ágætum enda ekki við öðru að búast, strákurinn er bráðskarpur eins og mamma sín. Ég get ekki séð að ég geti vikið mér undan því að fljúga með honum fljótlega. Mig grunar þó að hann eigi eftir að taka mig á taugum, fljúga á hvolfi, taka nokkur stoll og æfa nauðlendingar með kerlinguna innanborðs. Sá fær þá á baukinn. Hann hefur tekið sólópróf í svifflugi en ég tel það stórhættulegt og bara fyrir ofurhuga og upp í svifflugu fer ég aldrei í lífinu alveg sama hvað tautar og raular.

Ég var boðin í skötu til mömmu eftir bæjarstjórnarfundinn og hún rann ljúflega niður. Þrif biðu í Einarshúsinu því súpufundur Sjálfstæðismanna er í hádeginu á dag, föstudag. Þar heimsækja okkur þingmenn kjördæmisins og fékk ég Dóru Línu sem er mikill snillingur í súpugerð til að elda fiskisúpu. Sjálfstæðismenn hittast alltaf í súpu í hádeginu annan föstudag í hverjum mánuði og þar eru bæjarfulltrúar viðstaddir til skrafs og ráðagerða.

Úrskurður kom varðandi veikindi tengdapabba. Það var eins og við var að búast, krabbamein hefur tekið sér bólfestu í honum og hreiðrað um sig bæði í ristli og lifur. Búið var að fjarlæga æxlið úr ristlinum og góðar fréttir bárust í gær um að hægt væri að taka meinið úr lifrinni líka en það telst til undantekninga að það sé hægt. Þannig að reglulega góðar fréttir bárust í bland við þær slæmu svo þetta jafnaðist aðeins út. Það er því full ástæða til bjartsýni og við horfum fram á veginn jákvæð og vongóð. Karlinn er frekar hress enda geðgóður með afbrigðum og lætur ekki á því bera að þetta komi honum úr jafnvægi.  

Hef haft af því spurnir að það sé flókin aðgerð að setja inn athugasemdir á bloggið mitt. Nú á að vera búið að færa það til betri vegar svo nú á það að vera auðvelt og ekkert mál. Ég var farin að halda að engin ykkar kynni að skrifa svo nú er lag að fara að koma með innlegg í umræðuna. Það er svo skemmtilegt ef ég fæ að heyra ykkur segja mér hvað ég sé æðislega skemmtileg, seiðandi, sjóðheit og sæt.

Nú er ég komin með óráð eins og þig heyrið og tel tímabært að ég hætti þessu bulli og fari og halla mér.

Verð vonandi komin með ráð og rænu þegar ég blogga næst.

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Er bara að prufa athugasemdadálkinn.  Var að fylgjast með Andra einkaflugmanni hér í Reykjavík ásamt Lilju.  Vona að súpufundurinn gangi vel.  Ég sé að ráð og ræna var að yfirgefa þig í lok dagsins í gær en þú hefur vonandi vaknað tvíefld í morgun. kveðja JBG

Jón Bjarni (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 12:36

2 identicon

Til hamingju bæði með einkaflugmanninn.  Bið fyrir kærar kveðjur til Geirs, svo og til þeirra Elsu og Magga, Gaua og allra hinna.  Er að hendast Vestur með síðasta flugi í dag.  Kíki kannski á spurningakeppnina í kvöld ef ég hef tíma.

Kveðja,
Jómmi 

Jómmi (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 13:34

3 identicon

Namm skata...aldrei er mér boðið í skötu...

Hamingjuóskir til Andra, vona að ég fái að fylgjast með af jörðu niðri þegar hann fer að æfa nauðlendingar með þig innanborðs.

Kveðja, Auður.

Auður (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 13:48

4 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Grípur þú ekki í gítarinn í kvöld og kyrjar nokkra gleðisöngva Jómmi?

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 9.2.2007 kl. 17:37

5 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Gaman að heyra í þér Auður. Var farin að halda að þú hefðir hrokkið upp af.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 9.2.2007 kl. 17:39

6 identicon

Til hamingju með drenginn þinn Ragna mín. Ég kem reglulega hér við og jafnast lesningin á við kaffi úr fínum rósabolla og góðum konfektmola með.

Kveðja Guja

Guja (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 18:35

7 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Gaman að heyra Guja mín og verði þér að góðu. Ég kem til með að bjóða upp á rjúkandi kaffi með konfekti í mínum hugleiðingum eins oft og kostur er.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 9.2.2007 kl. 19:06

8 Smámynd: Grazyna María Okuniewska

Til hamingju með drenginn, það er svo gaman að frétta að allt gengur vel.

Grazyna María Okuniewska, 9.2.2007 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635851

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband