Íþróttameiðsl

Dreifibréfið fer í póst í dag. Yfirleitt eru þau öll með sama sniði en kaffibollinn og bjórkannan sem eru aðalsmerki Kjallarans fengust ekki til að vera til friðs og voru því ekki með á dreifibréfinu sem þið fenguð að sjá í gær.

Mig hlakkar svo til að hitta Gógó sem er spyril Kjallarakeppninar en það er alltof langt síðan við fífluðumst saman síðast. Hún er eldhress og skemmtileg. Hún hefur fengið að upplifa erfiðleika í sínu lífi en stendur svo keik og ber sig svo vel. Hún er dugleg stelpa. Við höfum farið með körlunum okkar á fótboltamót fyrir gamla lögreglumenn og svitnað þar yfir glæsi tilþrifum okkar manna í boltanum og hvatt þá áfram af bestu getu. Oftar en ekki hafa þeir verið skakkir og skældir og skakklappast heim. Það eru víst kölluð íþróttameiðsl. Í slíkum leikjum ætla þeir sér mikið meira en getan segir til um. Blessaðir karlarnir. 

Kútmaginn er orðinn ákveðinn 17. febrúar og það er verið að setja saman stórband sem mun troða upp í tilefni þess. Það verður mjög spennandi að sjá og heyra hvernig það kemur til með að hljóma. Þar fara fremstir í flokki ungir piltar sem ég hef miklar mætur á. 

Góugleðin verður svo 24. febrúar og þá munu Benni Sig og Hrólfur Vagns vera mér til aðstoðar eins og áður var ákveðið.

Við erum bara einar heima mæðgurnar ég og Elsa. Restin er í Reykjavík. Veikindi eru að koma upp í fjölskyldunni og fundur með aðstandendum síðar í dag. Vonandi fer þó allt vel. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn og vongóður.

Ég byrjaði að taka pabba upp á bandi í gærkvöldi og hann fór á kostum eins og búast mátti við. Hann hefur svo gaman af að segja frá og er svo minnugur og fróður. Ég var að pikka hans æviágrip á tölvuna til klukkan tvö í nótt og er orðin stíf í öxlunum. En ég verð að fórna mér fyrir málstaðinn og tek bara íbúfen og læt sem ekkert sé.

Bæjarstjórnarfundur í dag. Ég held að hann verði rólegur miðað við þau mál sem fyrir honum liggja. Stóra refa og tófuskottsmálið er á dagskrá og gæti verið tekist á um það en ég er búin að fá greitt fyrir skottið mitt svo þetta er ekki eins mikið hitamál í mínum augum og það væri ella. Auðvita er þetta sagt í gríni því verk bæjarfulltrúa er að vinna að framfaramálum í byggðarlaginu sem flestum bæjarbúum til handa, eins og kostur er . Ég tel það einn versta ókost í fari bæjarfulltrúa eða fólks í slíkum störfum að ganga erinda síns sjálfs og sinna nánustu á pólitískum vettvangi . Það á ekki að eiga sér stað.

Ég er svo spennt hvað Kristinn H. Gunnarsson ætlar að gera en hann tilkynnir áform sín í dag um sína pólitísku framtíð. Ég munstraði hann í frjálslynda flokkinn um daginn eins og einhverjir kannski muna. Koma mun í ljós í dag hversu sannspá ég var.

Best að fara í hesthúsin að hleypa þessum greyjum út í daginn.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635851

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband