Sólstafir

Harpa Oddbjörnsdóttir segir nú sögu sína á BB í afar áhugaverðum pistli en hún þurfti að þola kynferðismisnotkun á sínum uppvaxtarárum. Ég dáist að dugnaði hennar, kjarki og þori að koma fram. Hún stendur svo sterk á eftir og ber höfuðið svo hátt. Ef það væri ekki fyrir konur eins og hana þá lægi þessi ófögnuður í enn meiri þagnar og leyndardómshjúpi. Nú er unnið hörðum höndum að stofnun systursamtaka Stígamóta hér á svæðinu sem munu bera nafnið Sólstafir. Það er fallegt nafn sem hentar vel á slík samtök og er það von mín að Sólstafir glitri um sumardag. Sælt verði á grund og engi. Algróið tún og unnið flag, ilmi í sunnanvindi.  Geri ég þarna orð Guðmundar Inga Kristjánssonar skálds á Kirkjubóli í Bjarnadal að mínum. Ég vona að stelpunum gangi vel.

Grazyna er orðin bloggvinur. Það er kjarnorkukona sem stendur sig frábærlega. Hún bjó hér um nokkurt skeið og er þar af leiðandi Bolvíkingur og ein af stelpunum okkar. Merkilegt hvað strákarnir og stelpurnar okkar standa sig vel og skara fram úr hvar sem drepið er niður fæti. Maður á að vera stoltur af sínu fólki ef það stendur sig vel.

Óttarr er líka nýr í bloggvinahópnum. Hann er bróðir hennar Sibbu konu Geira á sjoppunni (er ég þá Ragna kona Jóns í löggunni??) og telst því eiginlega vera einn af strákunum okkar. Það var hann sem pantaði eintak af bókinni hans pabba og því hlítur að vera eitthvað i strákinn spunnið.

Bið að heilsa í bili.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635851

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband