Doktor Finnbogi - ekki bara á fimmtudögum

Það hefur borið við undanfarna mánuði á hverjum fimmtudegi og konurnar í þorpinu hafa orðið eins og nýútsprungnar rósir og margar þeirra sem alla jafna líta út eins og óumbúin rúm, hafa skartað sínu fegursta. Glöggt mátti sjá fatastílinn sparilegan og hárið uppsett svo ekki sé talað um skrautmálninguna í andlitum kvennanna á besta aldrinum í bænum. Vertinum brá heldur betur í brún svona fyrst í stað þegar skælbrosandi kvensur sem alla jafna brosa ekki til títtnefndrar eða bara brosa ekki yfirleitt, gátu ekki leynt kátínu sinni yfir hinu guðdómlega lífi, já hér á hjara veraldar og brostu svo út í bæði munnvik að annað eins hafði varla sést.

Þegar margumtöluð fór að grennslast fyrir um hvað lægi í loftinu hvern fimmtudag kom það í ljós að læknirinn, Finnbogi, sem kemur alltaf á heilsugæslustöðina á fimmtudögum væri valdur að þessum breytingum hjá kvenþjóð bæjarins vikulega. Varla voru þessar konur komnar út úr læknaviðtalinu blóðrauðar í vöngum, þegar þær fóru að upphugsa hvaða kvillar gætu verið að angra þær næsta fimmtudag svo hægt væri að panta tíma strax í bítið og fá þennan bráðhuggulega lækni til að gefa þeim læknisráð sem dygðu eitthvað fram í vikuna en alls ekki lengur en það.

Það vill nú svo til að Vertinn er alla jafna mjög hraust og þarf yfirleitt aldrei eða sjaldan að fara til læknis, fór að finna fyrir allskonar ójafnvægi  innvortis í framhaldinu, aðallega andlegum einkennum sem komu hugarástandinu úr jafnvægi. Brátt fór allt að snúast um þennan sjúkleika, fyrir utan það að éta að sjálfsögðu og því varð  það brýnasta málið að komast til læknis til að fá pillur eða eitthvað. Ekki var hægt að fara til hvaða læknis sem er því  á mánudögum var einhver læknir starfandi á heilsugæslunni sem betur hefði lært bifvélavirkjun, á þriðjudögum var einhver sem sendi alla inn á Ísafjörð til læknis og á miðvikudögum var einhver sem sendi bara alla í sund svo það var vita mál að Vertinn yrði að fara á fimmtudegi til Finnboga og fá lækningu og bót meina sinna.

Þá fór að vandast málið því það var bara aldrei hægt að fá tíma á fimmtudögum hjá Finnboga svo þetta var bara sjálfhætt. Allur óstöðugleiki varð því að hætta af sjálfu sér og jafnvægi náðist í kroppinn á ný og engar pillur og mixtúrur þurfti til að lækna þennan óáran enda hvarf hann eins og dögg fyrir sólu með hækkandi sól, versnandi gengi og icesave.

Samt sem áður hefur títtnefndri tekist að snara doktorinn og geymir nú prívat símanúmer hans eins og sjáaldur augans. Það kemur þó einungis til af því að hann ætlar að koma í Einarshús á prjónakvöld við gott tækifæri og tala um kvennakvilla og það á miðvikudegi. Þar ætlar hann að hita upp fyrir fimmtudagsviðtölin og jafnvel létta ögn álagið en það er auðvitað viss hagræðing í því að geta jafnvel læknað margar í einu. Konur eru því beðnar að gera sig klárar og finna einhverja krassandi sjúkdóma fyrir doktorinn og leita svara við þeim spurningum sem brenna á bolvískum kvensum þá stundina.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilesning

Veiga, (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 14:59

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

doktorinn kemur ekki á prjónakvöldið sem halda á næstkomandi miðvikudag.....hann kemur bara næst

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 29.3.2011 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband