6.3.2011 | 12:25
Minning
Það hrikti í stoðum kirkjunnar á hólnum er Kalli Steini var borinn til grafar í gær. Íslenski fáninn bylgjaðist undan snörpum vindinum er litið var út um kirkjugluggann og harmionikkuhljómurinn átti vel við á kveðjustundinni. Enn einn sonur hinnar bolvísku byggðar fallinn í valinn og horfinn á braut. Pabbi sat traustur við hliðina á Vertinum á kirkjubekknum og títtnefndri var hugsað til þess hve heppin hún væri að eiga hann að ennþá nærri 88 ára gamlan til að koma með sér til messu.
Kalli Steini og Marta voru dugleg að brjóta upp hversdagsleikann og komu reglulega í Einarshús til að fá sér að borða. Þar léku þau jafnan á allsoddi og það var svo gaman að fá þau í heimsókn og stjana við þau enda kunnu þau svo sannarlega að meta það og létu það óspart í ljósi. Í þessum heimsóknum kynntist ég Kalla alveg upp á nýtt enda sat ég oftar en ekki með þeim að spjalli þar sem talað var um alla heima og geima. Honum þótti mikið til mín koma og mér til hans. Það er ómetanlega minning nú þegar ég veit að hann kemur ekki aftur.
Læt ég með fylgja vers er sungið var fyrir Kalla á hans uppvaxtarárum:
Gekk að heiman glaður drengur
gekk hann móðurhúsum frá.
Honum brann í ungum æðum
æsku mannsins ferðaþrá.
Gekk hann horskur gegnum skóginn,
gat hann stefnt á háreist fjöll.
Trén hans bernsku vinir voru
virtust hvísla til hans öll.
Vertu sæll við söknum þín.
Höf. ókunnur
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Góðan daginn Ragna.
Góð skrif hjá þér.
Níels A. Ársælsson., 7.3.2011 kl. 07:39
Daginn sjálfur og takk fyrir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 7.3.2011 kl. 21:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.