1.3.2011 | 19:20
Prjónakvöld á miðvikudagskvöldið
Prjónakvöldið verður haldið á miðvikudagskvöldið og hefst það kl. 20:00 að vanda. Þá munu hinar mestu prjónakonur kaupstaðarins koma saman og prjóna af miklum móð húfur og vettlinga og aðrar stórglæsilegar prjónaflíkur. Það væri gaman að halda sýningu á þeim vörum sem verða til á þessum prjónakvöldum og stefna öllum þeim sem áhuga hafa á slíku oneftir í vor.
Hver veit nema prjónakonum verði boðið til betri stofu en nú er hún tilbúin til notkunar eða svo til. Senn fer hvert herbergið að klárast á fætur öðru á efri hæðinni og hlutirnir ganga ótrúlega hratt fyrir sig um þessar mundir. Það er víst ekki seinna vænna að fara að klára efri hæðina því í byrjun maí byrja herlegheitin í húsinu er þýskir sjóstangaveiðimenn fara að birtast í herbergin til vikudvalar í senn.
Mikil áhersla var lögð á að gera stofuna sem besta úr garði og lítur hún nú út eins og fínasta heldri manna stofa. Veggir voru veggfóðraðir og panellinn málaður í fallegum pastellitum. Skorsteinninn var gerður upp og gömul steypa brotin utan af honum og hann lakkaður líkt og niðri. Gömlu sófasettin sóma sér vel í stofunni og sæti fyrir allt að 15 manns með góðu móti. Þetta verður stofa fyrir þá gesti sem verða í húsinu til næturdvalar en stefnt er að því að gistingin verði tilbúin fyrir páska. Vænta má þó þess að hægt verði að leiga stofuna undir smærri fundi þegar engir næturgestir eru í húsinu.
Í Einarshúsi verða fimm herbergi með handlaug, þrjú tveggja manna og tvö eins manns. Tvö salerni verða á hæðinni með sturtu sem er nokkur lúxus miðað við svona fá herbergi. Útsýnið verður stórfenglegt og engu öðru líkt og Vertinn er þess fullviss að hvergi verður betra að vera.
Í stofunni er fyrsti innbyggði fataskápurinn í plássinu og einnig er sófasett Einars heitins Guðfinnssonar og Elísabetar komið heim á ný en það var gjöf frá Lilló og Arnari. Það gefur húsinu svo mikið gildi að fá muni með sögu.
Rétt er eftir að finna réttu gardínurnar og myndir á veggina en Nina Ivanova og Ómar Smári eru að vinna sögusýningu sem verður í almennu rými hússins. Vertinn er búinn að vera að safna myndum af vinnukonum og öðrum þeim sem hafa verið í húsinu og þeim verður gerð góð skil á veggjum hússins.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Vá hvað þetta er glæsilegt hjá ykkur. Til lukku .
Gunna Gumma Hafsa (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 19:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.