Horft til hafs

Ég sé að veðrið er gott og stillt. Steinhúsið gnæfir eyðilegt niður á Kambinum og horfir til hafs minnugt liðinna tíma þegar húsið iðaði af lífi. Maddý mágkona mín og Einar eiga húsið núna. Vonandi tekst þeim að reisa það aftur til vegs og virðingar þegar um hægist hjá þeim. Skin jólaljósanna hjá Magga Hans er eitthvað farið að dvína og lífið er að komast aftur í fastar skorður. Bakkavík hefur slökkt á skútunni sem gnæfir yfir bæinn um dimmasta skammdegið. Það birtir meira með hverjum deginum sem líður og birtan lýsir upp huga og hjarta.  

Ég var að opna tölvupóstinn minn og sá þá bréf frá Steinþóri Bragasyni er varðar vegamál á Vestfjörðum þar sem hann leggur til að könnuð verði hagkvæmni þess að að tengja þjóðveg 61, Djúpveg í Kollafirði, með göngum þaðan í Ísafjörð í stað þess að leggja láglendisveg um miðbik Reykhólasveitar. Ég á eftir að lesa betur yfir hugmyndir hans og spekúlasjónir.

Mér finnst mjög ánægjulegt að framkvæmdir við Djúpveg skuli vera hafnar og hlakka til þegar ég get keyrt allt Djúpið á bundnu slitlagi.

Sá á pistlinum hans Gríms að Sigur Rós er húsnæðislaus. Ég tel það næsta víst að þeir hugsi með hlýhug hingað vestur og bíð þá velkoma. Ég myndi meira að segja lána þeim Kjallarann til að koma sinni músik á framfæri. Svona er ég nú góð inn við beinið. 

Andri fer í flugprófið í dag svo loksins sér fyrir endann á þessu flugnámi hans. Hann er óttaleg óveðurskráka og oftar en ekki hefur helst yfir höfuðborgina stórt og mikið óveðursský þegar hann hefur átt að fara í flugtíma svo þetta nám hefur dregist fram úr hófi. Flugkennarar Flugskóla Íslands voru farnir að bregða á það ráð að bóka hann undir dulnefni til að leika á veðurguðina og var hann nefndur Ægir þegar svo bar undir. Ég er frá því að það hafi haft eitthvað að segja.

Elsa verður átján ára á næstunni og mikil tilhlökkun fylgir því. Samkvæmt nýjustu fréttum er stór afmælishátíð í vændum þar sem mikið verður um dýrðir og mörgum boðið. Vakin hefur verið athygli á því að gamalt fólk sé ekki vel séð í slíku teiti og þar er væntanlega átt við mig. Mér finnst ég vera lítið eldri en hún og hlusta því ekkert á þennan þvætting.

Í kvöld er þorrablót hjá bekknum hennar Lilju og sviðin bíða á borðinu eftir að verða soðin. Ef ég þekki þessa rollinga rétt þá verður eitthvað um samkvæmisleiki og ógeðsdrykki sem blandaðir eru af mkilli kostgæfni handa okkur foreldrunum. Það er bara gaman.

Stútungur er á Flateyri á laugardagskvöldið. Hver veit nema Vertinn setji slagbrandinn fyrir Kjallarann og skelli sér á Stútung og sletti svoldið úr klaufunum.

Spilavistin er í kvöld kl. 21:00. Vegleg verðlaun í boði að vanda.

Ekkert nýtt er að frétta af Þorrablótinu og Kútmaganum. Þið fáið að fylgjast með jafnóðum.

Njótum þess að vera til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gæti þetta veður hjá honum Andra ekki verið ábending frá æðri máttarvöldum?  Að drengurinn eigi bara alls ekki að vera uppi í háloftunum í hrúgu af járni?  Hefur hann einhverja hugmynd um hvað það hlýtur að vera VONT að hrapa nokkra kílómetra og lenda kannski í smugunni?

Fólk svona tengt mér á að hafa báðar fætur á jörðinni takk.

Gangi stráknum annars vel en mér finnst bara veðrið hérna ekkert vera uppá marga fiska...

Auður.

Auður M. (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 11:58

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Heldurðu að það verði ekki gaman þegar Andri fer að fljúga með okkur systurnar til Kúlúsúkk og á Keilisnes í leit að ævintýrum??

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 2.2.2007 kl. 15:24

3 identicon

Hvaða vitleysa mun öruggari þarna uppi heldur en í bílnum á leiðinni niður á völl. En progress checkið er a.m.k. í höfn síðan er bara að sækja um lokapróf:-)

 kv.  Andri

Andri og Þórunn (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635851

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband