Tími á blogg

Fyrst að títtnefnd gefur sér tíma til að setjast niður telst tilvalið að blogga um lífið og tilveruna og segja frá því helsta sem á dagana drífur. Helgin sem nú er að renna sitt skeið á enda hefur verið æði löng og ströng enda alsetin jólahlaðborðum og öðrum veisluhöldum. Vaktin getur verið löng þegar svo ber undir en vinnan skemmtileg og fjörug.

Á síðasta hlaðborði fyrir þessi jól, á laugardagskvöldið, ætlaði þakið hreinlega að rifna af Einarshúsi því stemningin var svo yfirdrifin. Söngurinn ómaði um nágrennið og Benni Sig tryllti bókstaflega mannskapinn og Hermann Ási sló ekki slöku við í undirleiknum. Þetta var frábærlega skemmtilegt allt saman.

Áfram hélt fjörið fram á rauða nóttina en Jómmi og Stjáni sáu um stuðið í Kjallaranum og það var gaman og skemmtilegt nýnæmi í því að hafa kránna opna en hún hefur verið lokuð undanfarið enda hefur aðsókn ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Það verður jú að borga sig að halda úti þjónustunni, annars leggst hún af og það er staðreynd hversu andstyggilega það kann að hljóma.

Víðir Ben og Guðný Hildur lásu upp úr jólabókum í hádeginu á föstudaginn var og þar mættu nokkrir bókaunnendur. Sólveig Sigurðar mun lesa upp úr jólabók í hádeginu á næsta föstudag og Benni bróðir hennar ætlar að syngja jólalögin.

Prjónakaffið hefur verið að gera sig og aðsókn að spilavistinni hefur aukist heldur betur og því verður henni haldið áfram eftir áramótin. Vinningarnir glæsilegir og svo verður áfram en vænta má þess að aðeins þurfi að hækka aðgangseyrinn svona til að hafa fyrir vinningum enda hækkar allt þessa dagana sama hvað er.

Athygli er þó vakin á því að aðgangseyrinn að spilavistinni fer allur til kaupa á vinningum og er því ekki nýttur að neinu leyti til að greiða niður milljarðalán sem bankar hafa veitt vinum og velvildarmönnum undanfarin ár. Ekki króna af aðgangseyrinum fer heldur til að greiða afskriftir þessara sömu manna á milljörðum á milljarða ofan sem felldir eru niður með einu pennastriki fyrir vandamenn og besta vini aðal. Það er víst nóg sem títtnefnd og annað venjulegt fólk þarf að reiða út til að standa skil á skuldum fjárglæframanna hér á þessu landi og þeirra sem lifað hafa eins og greifar undanfarið ár fyrir peninga sem teknir hafa verið að láni í íslenskum bönkum fyrir veð í hinu og þessu sem er svo einskis virði nú.

Vertinn er bara hreinlega ekki nógu vel gefin til að skilja hvað gengur á í þessu þjóðfélagi og botnar hvorki upp né niður í þessu ástandi. það er því eins gott að reyna að þrauka og halda áfram að hlúa að sínu. "Gera það sem maður er góður í" hvað sem það er nú, og drattast áleiðis.

Kirkjukórinn átti þó hug og hjarta títtnefndrar og Gunnu vinnukonu í dag og snittur voru smurður og kökur bakaðar af miklum móð í tilefni aðventukvölds í Hólskirkju. Þar komu kirkjugestir fullir af heilögum anda til veislunnar og borð svignuðu undan kræsingum. Þar þurfti Vertinn ekki að breyta vatni í vín en bjó til eðalsúkkulaði úr mjólk og sírísu konsum og gerði það nokkuð vel og brauðið smakkaðist vel.

Það er þó nokkuð nýnæmi í því að koma heim og blogga ögn um ástandið og nokkuð gott bara fyrir svefninn að setja þessar línur á blað...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband