Hitt og þetta.

Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið og ég er strax farin að huga að hljómsveit fyrir þorrablótið að ári. Það er eitt af skyldum formanns þorrablótsnefndar að útvega almennilegt band sem sérhæfir sig í gömlu dönsunum, nýbylgjurokki og pönki af ýmsu tagi.  Ég verð auðvita að toppa öll fyrri blót og lág því beinast við að tala við Mick Jagger söngvara Rollinganna en ég tel mig þekkja hann ágætlega, a.m.k. á myndum. Elton John er nýbúin að troða hér upp í veislu og þykir ekki lengur flott að bjóða upp á spangólið í honum blessuðum karlinum. Skemmst er frá því að segja að Mick Jagger tók vel í hugmyndina og sagði það vera sérstaka upphefð fyrir hljómsveitina að fá að troða upp í þvílíku krummaskuði eins og Bolungarvík og þótti honum Félagsheimilið tilvalinn staður til að syngja gleðisöngva eins og ''I cant get no satisfaction'' og fleiri slagara í svipuðum dúr. Gaman væri ef Elvis Presley myndi syngja í hléum sínar ballöður til að hleypa rómatíkinni á hærra plan en eins og allir vita þá lifir Elvis enn, svo honum ætti því ekki að vera skotaskuld úr því að mæta hér vestur og taka lagið. Til öryggis ef allt myndi klikka þá hafði ég samband við Möggu Geirs sem er söngkona í stórsveit Baldurs Geirmunds og Möggu Geirs á Ísafirði og ég vona svo sannarlega að þau verði tilbúin að skemmta ef þeir Mick og Elvis forfallast. Hafði haft af því spurnir að þau væru upp pöntuð langt fram tímann svo ég ákvað að vera tímanlega og hringdi í Möggu í dag. Þau eru mjög skemmtileg á sviði og einstaklega fjörug og í ljós kemur á næstu dögum hvort þau verða tilkyppileg ef á þarf að halda.

Það er búið að rigna eldi og brennisteini dag. Sparisjóðurinn sýndi sjö gráður um hádegisbilið og ekki lýgur hann. Nýja skiltið út á Óshlíð sýndi tíu gráður og logn um miðjan dag. Þetta veðurfar er alveg með eindæmum núna í enduðum janúar.

Ég fór á fund með stýrihóp um Íbúaþing sem halda á 10. febrúar, en það var símafundur með fyrirtækinu Alta sem heldur utan um skipulagningu þingsins. Ég á eftir að skrifa grein um sýn mína á slíkt íbúaþing og hver veit nema eitthvað fæðist í huga mér seinna í kvöld sem ég get fest niður á blað um það.

Þorrablót Bolvíkingafélagsins er um næstu helgi í Reykjavík og leggja fjölmargir Bolvíkingar leið sína þangað. Ég hef aldrei farið á þetta þorrablót en á kannski eftir að upplifa það áður en ég leggst undir græna torfu.

Ég stefni á að halda Þorrablót í Kjallaranum 10. febrúar og sendi ég auglýsingu þess efnis frá mér fljótlega.  Benedikt Sigurðsson eða Benni Sig. verður mér til halds og trausts, en hann ætlar að spila undir fjöldasöng og syngja gamanvísur. Síðan mun enginn annar er Hrólfur Vagnsson mæta með nikkuna og spila fyrir dansi eitthvað fram eftir. Ég veit að þetta á eftir að verða stór skemmtilegt. Nú verður forvitnilegt að sjá hvort einhver áhugi er fyrir slíku Þorrablóti en engar reglur ríkja um hverjir hafa aðgang að þessari skemmtun. Haldið verður í reglur og hefðir sem ríkja í Einarhúsi um reykingar en þær eru alfarið bannaðar. Það sígur verulega í Vertinn ef þær reglur eru brotnar og menn gera það ekki nema einu sinni.

Svo ég upplýsi hér hluta af stóru leyndarmáli þá er ég að íhuga að sækja um starf á Ísafirði á morgun sem er laust til umsóknar. Ég tel það næsta víst að ég verði frambærilegasti umsækjandinn en það á víst eftir að koma í ljós.

Bæjarráðsfundur í fyrramálið. Án efa get ég sagt ykkur einhverjar fréttir af þeim fundi.

Bið að heilsa í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo gætirðu náttúrulega stofnað þína eigin hljómsveit, með einhverjum góðum eins og gaurunum í wetwetwet sem gerðu gott með laginu "Love is all around you".   Olsen bræður mundu vera góðir í bakraddir fyrir þig líka en þeir voru ágætir í "Fly on the wings of love" hér í den.  Dettur í hug gott nafn á bandið "The Rams Testicles"

Kveðja.

Auður M. (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635851

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband