Sýnið stillingu um stund

Það væsir ekki um Vertinn í Víkinni um þessar mundir meðan dvalið er í Noregi hjá Idu og hennar fjölskyldu í góðu yfirlæti. Óþarfi þótti þó að mótmæla með þessum ósköpum á Austurvelli þótt títtnefnd og hennar skyldulið yfirgefi landið um tíma og vert er að sína stillingu um stund. Einarshúsið er þó lokað þennan dyntinn fyrir utan að reynt verður að halda úti hefðbundnum dagskrárliðum eins og vanalega og var prjónakvöldið á sínum stað í kvöld og spilavistin verður á föstudaginn að vanda og er það þriðja og síðasta spilakvöldið í þessari röð spilakvölda.

Það er einkar skemmtilegt að upplifa lífið hjá venjulegri norskri fjölskyldu og forréttindi að fá að kynnast þeirra fjölskylduhögum. Búið er að heimsækja farfar og morfar auk þess að kíkt var í kaffi til mormor í dag og veitingar voru svo sannarlega ekki af skornum skammti. Heimili föðurforeldra Idu er í miðri Stafangri og húsið byggt 1890 og opnaðist ævintýraveröld er farið var upp í betri stofuna og sá Vertinn fyrir sér betri stofuna í Einarshúsi í svipuðum stíl.

Farið verður í stóra mollið á morgun sem er nokkuð stærra en Bjarnabúð og Eg til samans eða stærsta mollið í Noregi öllum og vænta má þess að hægt verið að versla eitt og annað því fatnaður virðist töluvert ódýrari hér en í verslunum heima. Matvara og önnur nauðsynjavara er þó talsvert dýrari og bregður títtnefndri stundum í brún er borga þarf brúsann og er hún nú vön dýrtíð svona í seinni tíð.

Fjölmargt er á dagskránni og ævintýrin bíða handan hornsins og fjölmargt sem búið er að ákveða að gera á meðan títtnefnd dvelur hér í vikutíma eða svo. Kannski koma fréttir af því síðar svo sýnið stillingu um stund.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband