30.9.2010 | 02:22
Hátíð í bæ
Bolungarvíkurgöng voru opnuð með pompi og prakt um helgina og sannkölluð hátíð var í bæ. Vertinn hafði í nógu að snúast þann daginn enda þurfti að elda dýrindis máltíð fyrir mann og annan í hádeginu á sjálfan opnunardaginn. Af þeim sökum gafst ekki tóm til að klippa á neina borða þó svo að það sé auðvitað vita mál að Vertinn átti auðvitað allan heiðurinn af borun þessara jarðganga þó svo að allir vilji Lilju kveða í kútinn núna með eintómum fyrirslætti.
Forsetinn heiðraði títtnefnda og fékk sér snæðing í húsi sorgar og gleði ásamt öðrum fyrirmönnum þjóðarinnar á opnunardaginn. Nú þykir bara enginn maður með mönnum nema hafa komið í þetta merka hús og Ólafur Ragnar verður miklu meiri maður fyrir vikið og betri forseti fyrir íslenska þjóð því nú getur hann breytt út fagnaðarerindið og borið hróður Einarshúss út um allan heim ásamt því að standa upp í hárinu á stjórnvöldum að passa að þau komi ekki öllu á kaldan klaka.
Vertinn brá svo undir sig betri fætinum og fór út að borða um kvöldið ásamt fjölmörgum heimamönnum og öðrum gestum og stundin var eins og um jól, mikil gleði ríkti og þetta var eins og eins stór fjölskyldusamkoma. Títtnefnd gleymdi sér svo í trylltum dansi fram á morgun og dagurinn hafði verið fullkominn þegar hann rann sitt skeið á enda.
Síðan þá hafa göngin holað fjallið og eru til taks ef á þarf að halda. Sagt er að leiðin hafi styst um fjórar mínútur og óþarfi er að véfengja það á nokkurn hátt. Það munar þá einna helst um öryggið á leiðinni fram og til baka og þægilegheitin að geta bara ekið beint af augum en ekki í eintómum sveigjum út og suður.
Hollenskur ljósmyndari tók myndir af fjölskyldu Vertsins á tröppunum svo forsetinn var ekki bara myndaður í bak og fyrir um helgina. Þá bætist þriðja myndin í safnið sem sýnir húsið frá mismunandi tímabilum með eigendum sínum í það og það skiptið og mun þessi þrenning mynda vera upp á vegg um ókomna tíð með hinum. Brýnt er að bera það til bæjaryfirvalda að ekki eru komnar neinar brjóstmyndir á títtnefndri og húsbóndanum en hafa ber í huga að slíkar myndir eru til af fyrirrennurum Vertsins í húsinu og standa bæði við félagsheimilið og sparisjóðinn. Þeirri hugmynd er komið á framfæri að slíkt verði gert ( auðvitað löngu eftir að við erum dauð) og tilvalinn staður er á lóðinni þar sem Hafsteinsstaðir standa nú, fáum til ánægju og yndisauka.
Næsta ferðalag er handan hornsins því Noregur bíður í andagt. Fyrirhuguð er ferð þangað næstkomandi sunnudagsmorgun og þá verður kærkomið frí með fjölskyldunni í vikutíma eða svo. Ida skiptineminn okkar getur varla beðið eftir íslensku verstfamilíunni sinni og búið er að skipuleggja dagskrá. Þá verður hátíð í Stafangri og vænta má þess að gleðin þá yfir komu margnefndrar verði álíka og ánægja heimamanna með göngin. Því má sjá að áfram verður hátíð í bæ og borg.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Góðan daginn.
Góða ferð til Noregs. Vonandi verður langt að bíða þess að nefnd brjóstmynd komi í stað Hafsteinsstaða, þar sem þú óskar eftir að það verði ekki fyrr en eftir ykkar daga. En það er svo annað mál að Hafsteinsstaðir mættu mjög gjarnan hverfa strax í dag. Vonandi verður svo góðri tillögu hafdið við, alltaf príði af fallegum myndum
Elísabet María Pétursdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 10:35
Þetta er auðvitað hárrétt hjá þér Beta Mæja að brjóstmyndin þarf að koma strax svo hægt verði að jafna Hafsteinsstaði við jörðu sem fyrst. Enda er ekkert vit í því að ætla að fara að steypa Vertinn í Víkinni í mót löngu eftir dauðann, nóg er hún orðin fyrirgengileg nú þegar
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 30.9.2010 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.