Dagurinn fer seint á fætur.

Dagurinn fer seint á fætur í dag eins og Halli Reynis segir í einu laga sinna, með öðrum orðum, ég er að drattast á lappir fyrst núna. Halli hélt tónleika í Kjallaranum fyrir nokkru síðan og við náðum vel saman og erum prýðiskunningjar. Misjafnt hvernig maður tengist fólki.

Hef verið að brjóta heilann um það hvernig ég geti fengið það sem mér ber fyrir tófuskottið og hef fengið þá ágætu hugmynd að senda bæjarsjóði svo ríflegan reikning fyrir blómkálssúpunni sem ég eldaði í gær af svo mikilli kostgæfni að bærinn og ég yrðum kvitt. Dreymdi í nótt að ég og Grímur vorum að rífast út af þessu máli, hann gnæfði yfir mér sótrauður í framan og las mér pistilinn. Það boðar örugglega eitthvað gott. Ég og Grímur rífumst ekki, bara kítum við og við. Það er reglulega gaman að skiptast á skoðunum við hann.

Auður systir hefur af því áhyggjur að ég verði of væmin í þessum bloggfærslum. Hún hefur hótað því að koma með alvarlega athugasemd ef ég missi mig inn á þær brautir. Ég er bara að reyna að vera jákvæð og sjá góðu hliðarnar á öllu og öllum. Það eru aðrir sem sjá um að halda því neikvæða á lofti.

Þannig að nú er þessi ágæta sysir mín orðin sjálfskipaður væmnisvörður sem sér til þess að öll væmni verði  innan velsæmismarka. Annars yrði það mjög skemmilegt ef Auður færi að blogga, hún er nefnilega miklu meiri penni en ég og töluvert skemmtilegri. Yfirbragð hennar allt svo bjart, augun geisla líkt og stjörnur á himinboga, allt hennar fas er sólskini líkast og húmorinn hennar eins og tindrandi tunglskin. Það er mikil gæfa að mér skildi hlotnast að eignast hana fyrir systur. 

Ég fyllist svo mikilli lotningu yfir þessu öllu saman að ég verð að taka mér hlé frá bloggfærslum í bili. Hver veit nema ég fara á ráðstefnu um Friðlandið á Hornströndum í dag.

Verðum í bandi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hallo mamma,,
Rosalega flott blogg hjá þér:)

Kv- Lilja

Lilja (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 12:31

2 identicon

Mér svelgdist nú svoleiðis á morgunkaffinu við þessa lesningu að ég var nærri köfnuð...það var ekki fyrr en Kiddi náði í startkaplana og gaf mér stuð að ég fór að jafna mig.

Annars ætla ég ekki að gera alvarlega athugasemd við þessi skrif því "oft ratast kjöftugum satt orð á munn".   Kveðja, Auður.

Auður M. (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 11:31

3 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Gott þú ert heil á húfi Auður mín, það er alltaf stuð í kringum þig.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 27.1.2007 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband