Fréttir

Góður gangur í Einarshúsi

Góður gangur hefur verið í rekstri Einarshúss í sumar og mikil aukning á komu ferðamanna. Ætla má að rúmlega þrjúþúsund manns hafi sótt húsið heim frá því í maí og er það töluverð aukning frá síðasta ári. Bakgarður hússins, sem tekinn var í notkun í vor og er allur hinn glæsilegasti, hefur verið nýttur til hins ýtrasta af gestum enda hefur verið einmunablíða hér vestra í sumar. Boðið hefur verið upp á matseðil að hætti húsfreyjunnar í Einarshúsi en lagt er upp með að hafa ferskt fiskmeti og heimagert bakkelsi og brauð á boðstólnum og fer það vel í svanga ferðalanga.

Uppbyggingin

Unnið er nú hörðum höndum að endurgerð efstu hæðarinnar en þar verða fimm herbergi með handlaug í útleigu næsta ár þar sem níu manns geta gist með góðu móti. Þar fer hagleikssmiðurinn höndum sínum um hverja fjöl og hvergi má sjá misfellur enda þarf saga hússins að lifa áfram í innviðum hússins næstu áratugina svo vel þarf að vanda til verka. Allur gamall panell er látinn halda sér eins og frekast er kostur og upprunalegu litirnir prýða veggi í hverju herbergi fyrir sig. Svalirnar hafa fengið sinn sess á suðurhlið hússins og þaðan er útsýnið inn Syðridal og Tungudal og langt upp á Skálavíkurheiði auk þess sem hægt er að gægjast inn djúp og gott ef ekki sést til tunglsins á góðum degi. Nauðsynlega þarf að lýsa upp umhverfið við húsið þegar húmar að og til stendur að setja niður ljósastaura fyrir svartasta skammdegið og helluleggja gangstétt fyrir framan húsið sem mun verða til mikilla bóta.

Vantar

Gömlu stássstofuna á efstu hæðinni þarf að mubla upp svo að sómi sé að og bráðvantar antik húsgögn og aðra gamla muni sem prýða myndu þessa fornu stofu. Sófasett Einars Guðfinnssonar hefur þó verið tekið til handagangs en húsráðendur fengu það að gjöf en vænta má þess að fleiri munir úr eigu Péturs eða Einars og fjölskyldna þeirra séu til víða og myndu hvergi sóma sér betur en einmitt í Einarshúsi.  Myndir úr húsinu og af fólkinu sem þar bjó og munir væru vel þegnir og er fólk góðfúslega beðið um að gæta að slíku í fórum sínum. Myndir úr versluninni eru einnig nauðsynlegar enda er verið að vinna sögusýningu um húsið í samvinnu við Menningarráð Vestfjarða og þá skal sögu verslunarinnar gerð skil á miðhæð hússins, auk sögu fjölskyldunnar á efstu hæðinni og sögu sjósóknar í Kjallaranum. Einnig mætti hugsa sér að myndir úr Bolungarvík og af mannlífinu í bænum fyrripart síðustu  aldar færu vel á veggjum hússins og taka húsráðendur flestu fagnandi sem laðað gæti fram þá stemningu sem ríkti í húsinu á tímum uppbyggingar.

Vetrardagskráin

Ætlunin er að hafa áfram opið í vetur að einhverju marki. Boðið verður upp á prjónakvöld annan hvern þriðjudag í vetur og mun Guðný Hildur Magnúsdóttir halda utan um prjónana á þeim kvöldum. Fyrsta prjónakvöldið hefst þriðjudaginn 7. september kl. 20:00. Spilavistin heldur sínu striki að vanda og hefst fyrsta spilavistin föstudaginn 10. september kl. 21:00 og er það fyrsta kvöld í þriggja kvölda keppni. Kjallarakeppnin verður á sínum stað í vetur annan hvern föstudag og hefst hún 17. október kl. 22:30. Vöfflukaffi verður í boði alla sunnudaga frá kl. 14:00-17:00 en Vöfflur Völusteins þykja einstakt sælgæti og bragðgóðar með eindæmum. Kjarngóðar kjötsúpur í hádeginu alla föstudaga með einu besta heimabökuðu brauði sem völ er á og plokkfiskur og heimabakað rúgbrauð í hádeginu alla miðvikudaga en rúgbrauð Einarshúss er eitt hið besta brauð sinnar tegundar á landinu. Betra er þó fyrir hópa að panta svo það nægi örugglega fyrir alla. Réttur dagsins verður í boði allan september eða eins lengi og þurfa þykir og vísir að sumarmatseðlinum ætíð til reiðu fyrir svanga maga. 

Opnunartími

Opið verður alla virka daga daga frá klukkan 11:00 til 22:00 nema annað sé auglýst sérstaklega. Opið verður á laugardögum frá 13:00 til 22:00 en Kjallarinn verður einungis opinn á laugardagskvöldum frá kl. 22:00 - 03:00 nema annað sér auglýst sérstaklega. Á sunnudögum er opið frá 14:00 - 17:00 og þá er tilvalið að koma og fá sér vöfflukaffi.

Viðburðir

Ennþá verður reynt að halda áfram menningardagskrá í Einarshúsi eins og undanfarin ár. Tónleikar og trúbadorar verða í boði ásamt bókaupplestri og vinnustaðakynningum sem haldnar verða endrum og eins í hádeginu á föstudögum. Einarshús verður áfram brúkað undir fundi af öllum gerðum og stærðum og tilvalið til að halda árshátíðir og afmæli og þeir sem huga að slíku eru hvattir til að setja sig í sambandi við rekstraraðila hússins. 

Göngin opnast

Nú er ljóst að markaðssvæði Einarshúss fer stækkandi og með tilkomu jarðganganna á milli Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur má vænta þess að 3000 manns bætist við flóru þeirra sem vilja sjá veg hússins sem mestan. Því verða tilboð á allskonar fyrir gamla og nýja viðskiptavini frá opnun jarðganganna þann 25. september og út mánuðinn og af og til eftir það.

Lokaorð

Eins og sjá má á framansögðu verður uppbyggingunni haldið áfram og hvergi hvikað frá þeirri stefnu að láta húsið iða af lífa alla daga. Mikil og spennandi verkefni eru í bígerð sem gera rekstrargrundvöll hússins betri á næstu árum og nokkuð tryggan. Það er þó umfram allt velvilji fólksins til uppbyggingarinnar sem ræður för, því það er fólkið sem gerir staðinn að því sem hann er og því mikilvægt að láta hjartað áfram slá Einarshúsi við Lækjarbryggju og nýta hvert tækifæri sem gefst til að sækja húsið heim.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband