Hljómsveit á stóra sviðinu

a band on a stageHljómsveitin „A band on að stage“ sem galvösk mætti vestur og hélt tónleika í Kjallaranum í gærkvöld, stóð svo sannarlega undir nafni. Þó má segja svona í framhjáhlaupi að þremenningarnir gátu ekki spilað á stóra sviðinu því þau voru öll frekar há í loftinu og urðu að færa sviðið svo þau rækju sig ekki uppundir.  Þrátt fyrir það hljómaði söngkonan Sara Blandon svo ótrúlega að Vertinn hélt um tíma að þakið myndi rifna af húsinu þegar tónarnir fóru sem hæst en hún hafði einkar mikil lag á að beita röddinni sinni um allan tónstigann af mikilli útsjónarsemi.  Þeir misstu af miklu sem misstu að þessu stórgóða þríeyki en þeir sem komu  fengu svo sannarlega heilmikið fyrir sinn snúð. Vertinn og húsbóndinn stóðu svo vaktina fram eftir nóttinni, ekki þó lengur en svo, að komið var heim á svo til skikkanlegum tíma. Opnunartíminn spilast eftir hendinni á föstudagskvöldum en auglýstur lokunartími er kl. 23:00, sem er víst ekki öllum að skapi herma fregnir.

Kjallarinn verður þó opinn í kvöld eins og öll laugardagskvöld frá kl. 23:00 til 03:00 og nýjar bardömur standa vaktina enda brýnt að tjalda nýjum andlitum við og við. Ekki þarf því neitt endilega að líta títtnefnda augum lengur í gegnum botninn á bjórglasinu heldur blasa við mun yngri konur sem vonandi kalla á meira viský. Ekki það að Vertinum er einkar lagið að yngjast upp og fríkka með hverjum bjór sem seldur er úr gömlu kolageymslunni og þegar góðir kúnnar hafa drukkið mjög ótæpilega og fara að sjá tvöfalt og jafnvel þrefalt lítur Vertinn úr fyrir að vera heljarinnar skutla með allt á sínum stað. Það er auðvitað regin misskilningur og það sér sérhver maður þegar ölæðið rennur af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband