Allt og Ekkert

Það er nú sérdeilis nýlunda að Vertinn í Víkinni gefi sér tíma til að blogga um daginn og veginn. Ekki er svosem margt í frásögur færandi þessa stundina annað en þá helst að segja frá því sem mallast í pottum Einarshúss og upplýsa hve margar vöfflur Völusteins komast í hið margrómaða vöfflujárn sem brúkað er óhóflega mikið á stundum í húsinu. Það er vægast sagt búið að vera brjálað að gera í sumar og þá sérílagi í júlímánuði sem toppaði algjörlega síðasta júlímánuð sem toppaði svo auðvitað júlímánuðinn þar á undan. Þetta hefur semsagt gengið vel þó svo auðvitað mikill vilji alltaf meira og vænst er frekari gestagangi fram í september og jafnvel lengur.

Aðdráttarafl Einarshúss og sá gríðarlegi fjöldi ferðamanna sem leið sína leggja um svæðið þar í kring er gríðarlegt og því sorglegt að sjá hvernig búið er að umhverfinu. Margumtöluð  hús í niðurnýðslu í nágrenninu, ónýtar götur og ómáluð hús  virkilega skamma upp á umhverfið, engin götulýsing er við húsið þar sem hvað mestur straumur fólkst dvelur þegar tekur að skyggja svo ekki sé talað um g-blettinn sem er afgirtur með appelsínugulum veifum til að varna utanaðkomandi.  Gangstéttir rúmast ekki innan skipulags þessa svæðis enda vænta má þess að það teljist til óþarfa við þetta hús sorgar og gleði.  Nú er óþarft að lesa milli línanna til að finna út fúllyndi títtnefndrar yfir ástandinu, nú fer mælirinn að fyllast og tími kominn til að láta í sér heyra.

Vertinn taldi sig eiga von á því að tekið yrði til hendinni þegar títtnefnd segði sig úr ábyrgðarstörfum fyrir bæinn en allt virðist koma fyrir ekki , amk. ennþá.  Ætli sé ekki næsta skref að segja sig úr flokknum, þjóðkirkjunni, hagstofunni, fjölskyldunni og bara öllu því sem telst til trafala þegar taka á ákvarðanir sem lúta að því að fegrun svæðisins og öðru því sem hlúa þarf að þarna í kring . Kannski segir kella sig bara úr landslögum fyrst hún er farin að rífa kjaft á annað borð og færir lögheimilið til Timbúktú til að undirstrika önuglegheitin og óánægjuna ,nú eða sækjir bara um grænlenskan ríkisborgarrétt fyrst Grænlandssetrið er komið í næsta hús. Þá koma Danir kannski færandi hendi með nýja götu og nýja gangstétt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband