Draumur

Vertinn setti upp glitrandi glingrið á ný og lét hárið falla svo það gæti bylgjast blíðlega í sumarvindáttinni og lét sig hverfa út í guðsgræna náttúruna og lét drauminn rætast. Kærkomið frí var tímabært enda nauðsynlegt að líta upp úr amstri dagsins í Einarshúsi. Vinnuhjúin tóku alfarið vaktina og standa hana þar til títtnefnd mætir á ný og brosa sínu blíðasta að gestum og gangandi og standa sína plikt eins og ætíð. Áætluð heimkoma er á morgun og þá mun hjarta Vertsins slá í takt við brakið í gólffjölum húss sorgar og gleði og púlsinn taka mið af gestagangi í það og það sinnið.

Sonurinn og flugmaðurinn sótti systur sína á flugvöllinn á Ísafirði og hóf hana upp til skýja í flugvélinni og bar hana til höfuðborgarinnar og þar með gat Vertinn tekið húsbóndann beina leið í Baldur sem sigldi í brakandi blíðu og sól yfir Breiðafjörðinn. Þar sat títtnefnd á hliðarþilfarinu og dásamaði það sem fyrir augu bar og fylgdist með haffletinum bylgjast í samræmi við bátinn. Þar glitraði sólargeislinn við sjóndeildarhring og litlu eyjurnar gáfu títtnefndri vink í tilefni dagsins og stundin var alveg einstök. Fjölskyldan var því ýmist á lofti, láði eða legi þennan daginn og hver og einn naut sín til fullnustu enda veðurblíðan með eindæmum og dagurinn ævintýri líkastur. Andri flaug og Lilja samdi ótal fréttir af ferðinni í hugskotinu sínu á meðan Elsa hljóp í kappi við tímann til að ná lágmörkum í skólann og þar var hver á sitt hverri hillunni að vinna í því að láta drauminn sinn rætast.

Snæfellsnesið og höfuðborgin hefur því haft ánægju af heimsókn Vertsins þennan dyntinn og notið hverrar mínútu. Tíminn er þó alltof stuttur í þetta sinnið líkt og svo oft áður og lítið við því að gera. Það koma tímar og koma ráð þegar öll börnin verða flutt á mölina í haust, þá fær Sódóma ekki stundlegan frið og þá verða heimsóknir títtnefndrar suður á bóginn hreinn draumur í dós.

Heimkoma bíður morgundagsins eins og fyrr segir því skyldan kallar og vaktin bíður. Þá verður títtnefnd endurnærð og getur staðið vaktina restina af sumrinu eða væntanlega eitthvað fram á haustið.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband