18.7.2010 | 10:51
Guðdómlegt
Það er ekki hægt að vera ósátt við gestagang undanfarinna daga í Einarshúsi. Ferðamenn eru farnir að dúkka upp í tíma og ótíma og það er vægast sagt stórskemmtilegt. Steinbíturinn er magnaður og smakkast einkar vel svo ekki sé talað um rabbsbarísinn með söfflei-inu sem slær ætíð í gegn. Þetta er allt guðdómlegt svo ekki sé nú meira sagt og vöfflur Völusteins himneskar og í stíl við guðdómleika aldinsgarðsins á bak við húsið þar sem sólin vermir gesti allan liðlangan daginn um þessar mundir. Það verður þó að segjast eins og er að það eru þreyttir húsbændur sem koma heim að kvöldi eftir langan vinnudag.
Það er ekki frítt við það að það ríki örlítil tilhlökkun eftir haustinu því þá verður hægt að fara í frí. Í augnabliks æsingi yfir yfirþyrmandi gestagangi á dögunum óskaði títtnefnd sér því að geta sest í helgan stein og helst komast á ellilífeyri en það er þó ekki tímabært að svo stöddu því eins og allir sjá því það á eftir að klára eitt og annað í húsinu og enn á reksturinn eftir að blása út og togna þegar gistingin á efri hæðinni verður orðin klár. Þar bíða mörg tækifæri sem verða að ævintýrum næsta sumar.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Komdu sæl
Mig langaði til að vita hvort títtnefnt Einarshús sé ekki með heimasíðu sem ég gæti skoðað?
Þuríður (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 18:09
Heimasíðan er www.einarshusid.is og þar má finna eitt og annað fróðlegt um reksturinn og það sem þar fer fram svona dags daglega dags. Bloggsíða Vertsins gefur þó oftar en ekki betri mynd af því sem fram fer í húsinu á góðum stundum og því betra að kynna sér hvortveggja út í ystu æsar
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 21.7.2010 kl. 21:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.