Vinnuhjú

VinnuhjúinVinnuhjúin í Einarshúsi standa sína plikt að vanda og halda utan um hús sorgar og gleði frá morgni til kvölds. Nýja vinnukonan Valgerður hefur tekið til starfa og mun standa vaktina í sumar ásamt því fríða föruneyti sem þar starfar alla jafna. Samkomulagið er með betra móti svona dags daglega dags og oftar en ekki glatt á hjalla svo ekki sé meira sagt. Utanveltuháttur Vertsins í Víkinni er þó oftar en ekki aðhlátursefni ungu stúlknanna sem starfa í húsinu, eða Lilju og Bryndísar, sem hvorki skilja upp né niður í ruglingnum sem á sér stað bak við ennið á títtnefndir en það fer þó venjulega vel að loknum. Enn ein vinnukonan er væntanleg til að standa næturvaktina í sumar eða á meðan hún endist hér vestra og raddir herma að hún sé hörð í horn að taka og kalli ekki allt ömmu sína þegar þannig viðrar enda er það nauðsynlegt þegar menn svolgra gleðivökvan meira en góðu hófi gegnir. Hún ber síðan makkann með reisn og heitir Anna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband