Langavitleysa.

Enginn mánudagur hefur verið í mér í dag enda engin ástæða til þess.  Þessi dagur rann upp eins og hver annar dagur með væntingar, vonir og þrár innanborðs.

Gaui bróðir kom í morgun kaffi sprækur og hress að vanda. Ekki fer þar mikill æsingamaður enda rólegur að eðlisfari eins og pabbi.  Honum var þó nokkuð skemmt því honum hafði borist til eyrna fyrir helgina sú fregn að hann væri orðin fram úr hófi þjófóttur, hefði brotist inn í skrifstofuna hjá Gná og væri best geymdur í tugthúsinu með öðrum ámóta glæpamönnum. Þessi upplogna staðreynd virðist hafa gengið um bæinn í einhverju mæli. Hann átti semsagt að hafa brotist inn til vinnuveitenda sinna til að rupla þar og ræna, hann Gaui sem má ekki vamm sitt vita.   Hann myndi frekar stela hinni heilögu biblíu af páfanum sjálfum heldur en að gera eitthvað á hlut þeirra bræða í Gná. Það hefur aldrei mátt segja styggðaryrði um þá Einar og Elías í hans eyru. 

Í Bjarnabúð í dag var ég síðan spurð að því hvort ég væri ófrísk??? Sú saga á víst að vera komin á kreik. Ég ákalla nú bara guð minn og skapara fyrir hvað hún Gróa gamla er orðin gersneidd af hugmyndaflugi. Gat hún nú ekki kjaftað krakka í einhvern annan en mig, miðaldara kerlinguna sem fyrir löngu er búin að segja skilið við barneignir.  Ég þorði nú ekki að spyrja hver ætti barnið en ég reikna fastlega með að lagt sé upp með það, að barnið sé eingetið eins og frelsarinn forðum. 

Ég lagði leið mína inn á Ísafjörð í dag eins og svo oft áður.  Ég fer reglulega þangað. Ísafjörður er fallegur bær með mikinn sjarma.  Ég fór í Myndás en Árný er að vinna fyrir mig myndir af Pétursfólkinu, en það var Pétur Oddsson, athafnamaður mikill, sem byggði Einarshúsið árið 1902.  Húsið gekk undir nafninu Pétursshús fyrstu árin en það urðu nafnaskipti á húsinu eftir að Einar flutti þangað með fjölskyldu sína. Pétur átti ömurlega ævi í húsinu og missti nær alla fjölskyldu sína úr berklum.  Þegar Helga elsta dóttir hans dó árið 1930, var hún 14 líkið sem hann fylgdi til grafar frá þessu húsi sínu. Um þetta má lesa í bókinni Brímgný eftir Jóhann Bárðarson.  Pétur dó 2. apríl 1931. Ég ætla að reyna að halda þessari sögu á lofti í húsinu og segi ykkur nánar frá lífi hans og starfi síðar.

Svona til gamans þá hafði Margrét Blöndal viðtal við mig einn sunnudagsmorguninn fyrir skemmstu.  Þar sagði ég sögu hússins, sem ég hef sagt svo oft áður og kann reiprennandi.  Þar urðu mér á þau mismæli að segja að 30 manns hefðu dáið í húsinu og þótti mörgum ég krydda söguna liðugt.  Þarna lágu sem sagt 16 manns aukalega í valnum í beinni útsendingu á RÚV.  Þið hefðuð átt að sjá svipinn á mínu fólki eftir eftir viðtalið þegar þau sögðu mér óðamála frá þessum mistökum mínum. Margrét leiðrétti það síðar í þættinum og það blessaðist allt vel. 

Ég fór síðan í kaffi á Hótelið og hitti þar Snorra og Kalla sem eru miklir meistarakokkar og reka SKG veitingar.  Erindið var auðvita að fá þá til að verka og elda kúttmagana fyrir kúttmagakvöldið 17. febrúar nk.  Ekki get ég sagt að þeir hafi brosað hringinn af ánægju yfir þessari beiðni minni en það er gífurleg vinna sem liggur í því að verka kúttmaga. Þeir gera þetta samt örugglega fyrir mig, þeir gera allt fyrir mig eða því sem næst. Einstaklega liprir og þægilegir menn.

Sveitungar mínir úr Dýrafirði birtust síðan í kaffi á Hótelið. Við eigum sumarhús í Dýrafirði í Núpsdal í landi Klukkulands sem heitir Hólakot.  Þar er gott að vera en alltof sjaldan gefst tími til að fara þangað sökum anna.  Sá tími mun þó koma þegar hægist um og þá getum við dvalið þar oftar.  Beggi og Lóa búa á Mýrum í Dýrafirði og er stórskemmtilegt að spjalla við þau hjón. Yfir rjúkandi kaffibolla og nýbakaðri eplaköku voru heimsmálin leyst en fyrr en varði var farið að rökkva og ég þurfti að halda heim. Það er svo uppbyggilegt að spjalla við skemmtilegt fólk.

Bóndinn verður í burtu eitthvað fram í vikuna og ég er því grasekkja um þessar mundir. Fræðslu- og forvarnarfulltrúinn fór með aðstoðaryfirlögregluþjóninum á Vestfjörðum, Jóni Svanberg, í yfirferð um umdæmið, væntanlega til að sýna sig og sjá aðra. Leið þeirra liggur til Patreksfjarðar.  Ég efast ekki um það eitt augnablik að það verður vel tekið á móti þeim þar.

Bæjarráð fundar í fyrramálið. Fá mál eru á dagskrá svo ég reikna með að fundurinn verði í styttra lagi.

Göngutúrinn var genginn langleiðina að Ósi.  Paparnir ómuðu í eyrunum svo takturinn var frekar hraður.  Snarpar vindkviður smullu þó á göngugarpinum og mátti litlu muna að húfan fyki á haf út og Vertinn átti í basli með að haldast á veginum í mestu kviðunum. Sumir segja að það sé nánast alltaf logn í Syðridal og þeir sömu tala líka fyrir göngum þaðan yfir í Tungudal.  Lognið fór alveg hreint rosalega hratt yfir í Syðridalnum seinnipartinn í dag.  Þig getið sjálfsagt lesið á milli línanna að mér hugnast ekki sú leið.  Ég vil fara Skarfaskersleiðina, sneiða fram hjá Hnífsdal og verja Eyrarhlíð en ég tek fagnandi ákvörðun samgönguráðherra hver sem hún verður um bættar samgöngur hér á milli. Hann hefur boðað að sú leið verði fyrir valinu sem tryggi fullt öryggi alla leið og ég veit að hann stendur við það. Með vindinum bárust þó gleðitíðindi úr dalnum sem ég segi ekki nánar frá hér.

þar sem við mæðgurnar eru bara þrjár heima ætla ég að bjóða upp á ís og hafa það notalegt yfir sjónvarpinu og ætla því að fara á Shell til Geira.  Heyri að það er að hvessa úti svo það er best að ég láti hér staðar numð í bili.

Ég dáist að ykkur fyrir að nenna að lesa þessar lönguvitleysur mínar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband