11.6.2010 | 02:23
Dásemd aldingarðsins
Það þarf ekkert að fjölyrða neitt um það að tónlistarhátíðin "Þorskurinn 2010" sem haldin var í bakgarði Einarshúss á laugardaginn var, tókst glæsilega í alla staði. Himnafaðirinn gerði allt sem í sínu valdi stóð til að veðrið væri eins gott og mögulegt væri og fjölmargir aðstoðuðu við undirbúning og eiga miklar þakkir skyldar fyrir sitt framlag. Tónlistarfólki öllu eru færðar bestu þakkir fyrir að koma fram og leifa gestum að njóta þess sem hver og einn hafði fram að færa með von um að sjá sem flesta af þeim næsta ár. Það er alveg ljóst að þessi hátíð verður að ári með svipuðu sniði og því er lag fyrir þá sem ætla að koma fram að taka sjómannadagshelgina frá og muna að setja sig í samband við títtnefnda í tíma. Vinnukonurnar í Einarshúsi stóðu sig með stakri prýði eins og reyndar allir aðrir en þær frumfluttu lag eftir sig sem heillaði hlustendur en þær prýða myndina hér til hliðar. Fleiri myndir af Þorskinum munu birtast síðar.
Það verður reyndar reynt að nýta sviðið í garðinum eins og frekast er kostur í sumar og konsertar og tónleikar fyrirhugaðir. Karl Hallgrímsson mun hefja tónleikaröðina á þjóðhátíðardaginn og hans ektakvinna halda myndlistarsýningu í salnum svo menningin mun blómstra í húsi sorgar og gleði sem aldrei fyrr. Vikulegar grillveislur verða reyndar í garðinum í allt sumar og fram á haust þegar sjóstangaveiðimenn gera sér glaðan dag og verður það partur af prógramminu þeirra sem er bara skemmtilegt. Þá mun Vertinn þurfa að gera sig skiljanlega á þjóðvesku sem er tungumál sem ekki nokkur maður skilur nema síður sé.
Án efa mun fagnaðarerindið berast með ógnarhraða um heimsbyggðina um dásemdir aldingarðsins og gullna hliðið standa hverjum þeim sem vill koma fram á sviðinu í bakgarði Einarshúss opið eða því sem næst. Hljómsveitir, dúettar, þríettar og fjórettar geta fengið að troða upp þegar þannig viðrar og einsöngvarar eru einnig vel séðir bæði einir og sér en einnig með öðrum. Kórar geta fengið áheyrn og bara allir þeir sem syngja vilja undir berum himni. Veðurguðinn gefur þó ætíð tóninn og harpa himnaföðurins verður að óma í takt við veður og vind til að allt geti gengið upp. Það getur þó hverjum manni verið ljóst að þeir aðilar eru með margnefndri í liði eins og áður hefur komið fram.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.