Galopið...

Einarshúsið í Bolungarvík hefur nú  tekið slagbrandinn frá eftir veturinn en opið verður alla daga vikunnar í sumar auk þess sem Kjallarinn verður opinn um helgar líkt og venjulega og þar verða trúbadorar á stóra sviðinu við og við að vanda.

Lilja og Bryndís vinnukonurGómsæta rétti má sjá á matseðli, hnallþórur og bolvískar vöfflur með belgísku ívafi munu verða í boði fyrir gesti og gangandi  en áhersla er lögð á heimabakað og rétti úr sjávarfangi. Útiveitingar verða í garðinum við húsið sem er allur orðinn hinn glæsilegasti og vænta má þess að sólin skíni þar í allt sumar og láti geisla sína leika um þá sem sækja húsið heim.  Lifandi tónlist verður leikin með reglulegu millibili alla virka daga á veitingastaðnum frá og með mánaðarmótum en tvær ungar starfsstúlkur munu hafa þann  starfa að leika og syngja fyrir gesti hússins gömul íslensk lög í bland við nýjast nýtt . Þar munu Lilja leika á gítar og ukulele og Bryndís Elsa syngja.  

Einleikurinn Pétur og Einar verður sýndur af og til í sumar en þar fer Kómedíuleikarinn á kostum í hlutverkum fyrrum íbúa hússins og túlkar ævi og störf frumkvöðla í Bolungarvík. Tónlistarhátíðin " Þorskurinn" hefur svo sinn sess á sjómannadagshelgi og svo mætti lengi telja.

Það má því hverjum manni vera ljóst að Einarshús verður iðandi af lífi í sumar og mun taka vel á móti þeim sem heimsækja Bolungarvík og vilja  njóta góðra veitinga í einu sögufrægasta húsi staðarins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband