Frú formaður.

Þau tíðindi gerðust á Þorrablótinu í gærkvöldi að ég var kosinn formaður næstu skemmtinefndar. Þann titil ber ég í heilt ár og er ég mjög upp með mér yfir því trausti sem mér er sýnt.  Með mér í nefnd eru tíu konur og ég hlakka til að vinna með þeim að næsta blóti.  Ég held að þessi formennska eigi þó eftir að stíga mér til höfuðs því ég finn nú þegar að það rignir örlítið meira upp í nefið á mér í dag en í gær.  Ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að láta ávarpa mig með sérstökum hætti vegna þessa og liggur það beinast við að kalla mig'' frú formann'' en ætli ég láti nokkuð verða af því.

Skemmtiatriðin lukkuðust mjög vel og voru skondin og smellin. Þær sungu bæjarbrag eftir mig og gerðu það vel, voru skírmæltar og innihaldið komst vel til skila. Sú umræða sem verið hefur um siði og hefðir blótsins höfðu engin áhrif á skemmtunina og ég hef á tilfinninguna að fólk hafi frekar styrkst í þeirri trú að breyta engu. Ég vona að við berum gæfu til að skiptast á skoðunum um þorrablótið á götuhornum fyrir næsta blót en ekki í fjölmiðlum. Höldum frekar á lofti jákvæðum fréttum af byggðinni okkar, ekki veitir af.

Ég og Kjallarinn minn fengum skerf að níði og háði sem segir mér það að það virðist renna í mér blóðið og tekið er eftir því sem ég er að gera. Ég lít á það sem upphefð að ef gert sé grín af mér á þorrablótinu. Nokkuð gott fannst mér atriðið þegar Kjallarinn auglýsti tvo fyrir einn á fyrirlestri forvarnar og fræðslufulltrúa lögreglunnar á Vestfjörðum sem halda átti eitt föstudagskvöldið á kránni.  Auðvita er þetta bara bráðfyndið. Samt var allt á Huldu varðandi Kötu kvæðið sem sungið var og passað var upp á að Halla ekki á neinn. Þarna er vísað í viss greinarskrif í BB.

Lífið heldur þó áfram eftir þorrablót og við þreyjum Þorrann að vanda af þolinmæði. Senn munum við sjá til sólar en hér felur sólin sig bak við fjöllin háu um dimmasta árstímann en fer að láta sjá sig um þessar mundir.  Þá leika geislar hennar um þessa fallegu Vík og dansa tignarlega um fjallasali. Birgir á Miðdal sér þó ekki sólina alla fyrr en 8. febrúar inn í Syðridalnum og þá kemur hún upp við Kistufellið. Ég veit þó að hann Birgir sér ekki sólina fyrir henni Kæju sinni allan ársins hring, ég þekki það frá því ég var krakki og var að leika við hana Guðnýju yngstu dóttur þeirra hjóna.  Við Guðný brölluðum mikið saman og þá var nú lífið ljúft.

Ég er búin að vinna morgunverkin og hrossin komin út í fallegan og bjartan daginn. Hver veit nema ég fari í útreiðatúr í dag.  Annars er góður göngutúr á dagskránni á eftir en við hjónin örkum stundum góðan hring á góðvirðisdögum. Þá geng ég reyndar mishratt því ég er alltaf með MP-3 spilara í eyrunum því mér finnst svo gott að labba og hlusta á tónlist og takturinn í göngunni því misjafn eftir því hvaða lag ég er að hlusta á. Bóndinn reynir eftir fremsta megni að fylgja mér eftir en það gengur misjafnlega vel. Það er örugglega oft sjón að sjá þegar við erum á ferðinni í heilsubótargöngu. 

Makalausar fréttir af Guðmundi Jónssyni fyrrum forstöðumanni Byrgisins. Alveg merkilegt hvað maðurinn er siðblindur og á erfitt með að greina rétt frá röngu. Það er ömurlegt til þess að hugsa að hann skuli í krafti stöðu sinnar misnota fólk sem á svona erfitt og leitar til hans í sínum erfiðleikum.  Hann á vonandi eftir að þurfa að standa skil á sínum gjörðum á endanum.

Ég þekki lítlilega hvað fólk gengur í gegnum í meðferð.  Fór sjálf á Vog í nóvember fékk innsýn í líf fíkla sem langt eru gengnir með sinn sjúkdóm.  Mér fannst það einstök upplifun. Ég fór reyndar ekki í framhaldsmeðferð en á kost á því ef á þarf að halda. Það er gott að vera á Vogi og ég er einstaklega heppin af hafa fengið að dvelja þar um tíma til að ná áttum í mínu lífi. Ég á miklu betra líf núna og er þakklát fyri það.  Ég á örugglega eftir að tala meira um minn fíkn sjúkdóm á blogginu mínu síðar.

Núna fussa eflaust einhverjir og sveia yfir því að ég skuli kalla áfengisfíkn sjúkdóm en ég leit ekki á mig sem sjúkling þegar ég gekk á fund Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis á sjúkrahúsinu Vogi. En núna veit ég betur. Heilinn í mér starfar öðruvísi en heilinn í þeim sem ekki misnota vímuefni en það gerir mig ekki að verri manneskju fyrir vikið, nema síður sé. Mér þykir gott að finna stuðninginn sem ég hef fengið eftir ég kom heim bæði frá vinum mínum og fjölskyldu sem og bæjarbúum og ég tjái mig óhikað um þessi mál í þeirri von að það geti komið einhverjum að gagni.

Nú hugsa eflaust einhverjir að nú sé ég orðin ga ga, vesæll og aumur fyrrverandi drykkjusjúklingur sem hefur það að markmiði að þurrka upp líðinn.  Það er öðru nær, Vertinn í Víkinni væri þá í vondum málum og færi trúlega á hausinn. Tel best að hætta þessu þrugli í bili. Vonandi eigið þið góðan dag.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kæra Frú formaður,,,, heheheheh

andskoti verður nú gaman að koma með mótmæla reglum á fyrir næsta blót. Stutt að fara. hehehehe.

þá fyrst byrja greinaskrifin.... kæra frú formaður. Ég er strax byrjuð að semja.

Ragna var rausnarkerling

en raunum lennti í

er blótið vildu sækja

einhleypir svallarar

En Ragna sem reittur hani

réttlætið varði stíft

sagði að blótinu yrði bani

ef breyti ætti því

Halla Signý

Halla Signý (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 19:51

2 identicon

kæra Frú formaður,,,, heheheheh

andskoti verður nú gaman að koma með mótmæla reglum á fyrir næsta blót. Stutt að fara. hehehehe.

þá fyrst byrja greinaskrifin.... kæra frú formaður. Ég er strax byrjuð að semja.

Ragna var rausnarkerling

en raunum lennti í

er blótið vildu sækja

einhleypir svallarar

En Ragna sem reittur hani

réttlætið varði stíft

sagði að blótinu yrði bani

ef breyti ætti því

Halla Signý

Halla Signý (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 19:51

3 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Elsku Halla mín.  Þú lofar fjöri að ári heyrist mér.  Ef allar greinar verða í bundnu máli mun ég mala þig, ekki spurning.  Þú er alveg kolómöguleg í endarímum. Vertu svo still

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 21.1.2007 kl. 21:56

4 identicon

Vildi bara minna á að fólk getur hreinlega drukknað ef of mikið rignir uppí nefið´áðí

Annars góður pistill en að ég fari að kalla þig "Frú formann" næsta árið ... þaþaþa er aftur annara manna handleggur.

Auður M. (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband